Tónlist

Tekur við góðri beinagrind

Ágúst Már Garðarsson er tekinn við sem umsjónarmaður edrú-tónleikaraðarinnar Kaffi, kökur og rokk og ról sem hefur göngu sína í kvöld eftir sumarfrí.
Ágúst Már Garðarsson er tekinn við sem umsjónarmaður edrú-tónleikaraðarinnar Kaffi, kökur og rokk og ról sem hefur göngu sína í kvöld eftir sumarfrí. fréttablaðið/vilhelm
„Hingað til hef ég verið Robin í þessu dæmi. Ætli ég sé ekki bara orðinn Hvell-Geiri núna?" veltir Ágúst Már Garðarsson fyrir sér, en hann hefur tekið við umsjón tónleikaraðarinnar Kaffi, kökur og rokk og ról af blaðamanninum Arnari Eggerti Thoroddsen, sem nemur nú tónlistarfræði í Edinborg.

Fyrstu tónleikarnir eftir sumarfrí fara fram í kvöld, að venju í Edrúhöllinni í Efstaleyti, klukkan 20 og stíga feðgar á svið í tveimur mismunandi sveitum. Captain Fufanu hefur leikinn með Hrafnkel Flóka Kaktus Einarsson í broddi fylkingar, en hann er einmitt sonur Einars Arnar Benediktssonar í Ghostigital sem leikur efni af nýjustu plötu sinni, Division of Culture & Tourism.

Tónleikaröðin hóf göngu sína fyrir ári og segir Ágúst, sem hefur verið Arnari Eggerti innan handar við skipulagningu, hana hafa verið tilraun sem tókst.

„Það er í raun magnað að það hafi gengið upp að hafa edrú-tónleika svona snemma á kvöldin í miðri viku. Arnar Eggert hannaði mjög góða beinagrind sem ég tek nú við. Þessu fylgir töluvert stúss og ég er með fiðrildi í maganum en líður samt mjög vel með þetta," útskýrir Ágúst, en hans aðalstarf er sem kokkur á veitingastaðnum Satt á Hóteli Natura.

„Ég hef verið viðloðandi tónleikahald frá því ég skipulagði reifin þegar ég var fimmtán ára, svo ég hef lært ýmislegt," bætir hann við.- kg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×