Pedro með tíu landsliðsmörk á tímabilinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. mars 2013 22:45 Pedro Rodriguez. Mynd/AFP
Pedro Rodriguez, leikmaður Barcelona og spænska landsliðsins, er markahæsti landsliðsmaðurinn á tímabilinu 2012-13 en þessi 25 ára leikmaður tryggði Spánverjum mikilvægan 1-0 sigur á Frökkum í gær með sínu tíunda landsliðsmarki á tímabilinu. Pedro hefur skorað þessi tíu mörk í aðeins átta leikjum og er með tveimur landsliðsmörkum meira en næsti maður á listanum sem er Brasilíumaðurinn Neymar. Zlatan Ibrahimovic er í 3. sæti með sex mörk fyrir Svía og Lionel Messi (Argentína) og Didier Drigba (Fílabeinsströndin) hafa báðir skorað fimm mörk. Það stefnir í sögulegan landsliðsvetur hjá Pedro Rodriguez því hann er nú aðeins fjórum mörkum frá því að jafn met þeirra Gerd Müller (Þýskaland 1971-72), Ronaldo (Brasilía 1996-97) og Patrick Kluivert (Holland 1999-2000) sem náðu allir að skora fjórtán landsliðsmörk á einu tímabili. David Villa á spænska metið en hann skoraði þrettán landsliðsmörk í fjórtán landsleikjum tímabilið 2008 til 09. Villa skoraði síðan 11 mörk í 15 landsleikjum tímabilið eftir. Pedro Rodriguez fær nóg af leikjum til þess að skora fleiri mörk því spænska landsliðið spilar tvo vináttuleiki fyrir Álfubikarinn þar sem liðið spilar í það minnsta þrjá leiki þar af einn þeirra á móti Tahítí.Landsliðsmörk Pedro 2012-2013 5-0 sigur á Sádí-Aarbíu (7. september 2012) - 2 mörk 4-0 sigur á Hvíta-Rússlandi (12. október 2012) - 3 mörk 5-1 sigur á Panama (14. nóvember 2012) - 2 mörk 3-1 sigur á Úrúgvæ (6. febrúar 2013) - 2 mörk 1-0 sigur á Frakklandi (26. mars 2013) - 1 mark
HM 2014 í Brasilíu Spænski boltinn Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Sjá meira