Woods með tveggja högga forystu á Bay Hill Jón Júlíus Karlsson skrifar 24. mars 2013 11:35
Tiger Woods lék mjög vel á þriðja hring á Arnold Palmer Invitational mótinu sem fram fer í Flórída á PGA-mótaröðinni. Woods er samtals á 11 höggum undir pari eftir að hafa leikið þriðja hringinn á 66 höggum eða sex höggum undir pari. Woods er efstur, tveimur höggum á undan Justin Rose, John Huh og Rickie Fowler. Woods var að pútta frábærlega á hringnum í gær. Hann setti hvað eftir annað niður góð pútt og er nú mjög sigurstranlegur í mótinu. Woods hefur nú þegar unnið tvö mót í ár og með sigri í kvöld nær hann efsta sæti heimslistans af Rory McIlroy sem hefur setið þar undanfarna mánuði. Daninn Thorbjorn Olesen er ásamt Spánverjanum Gonzalo Fdez-Castano og Bandaríkjamanninum Jimmy Walker í fimmta sæti á átta höggum undir pari. Lokahringurinn fer fram í dag.
Golf Mest lesið Van Gerwen kemur trans konunni til varnar: „Þetta er svo sárt“ Sport Sló átta ára dóttur sína eftir tap Sport Fundað um framtíð Guardiola í vikunni Enski boltinn Amorim getur ekki byrjað alveg strax í nýju vinnunni Enski boltinn Teitur spilaði með manni sem dekkaði Jordan og drakk kippu af bjór fyrir æfingar Körfubolti Gagnrýnir blaðamann sem gerði grín að útliti hennar Sport „Ég vil ekki deyja í sjúkrarúmi heldur í hringnum“ Sport „Ég bað ekki um fjögur stig en fékk fjögur stig“ Sport Íslandsmeistarinn úr leik og þrettán ára gutti stal senunni Sport Arteta svekktur eftir jafntefli á Brúnni: „Snýst um að vinna“ Enski boltinn Fleiri fréttir McIlroy skaut niður dróna „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Sjá meira