Fótbolti

Ólafur Ingi úr leik gegn Kýpur

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ólafur Ingi Skúlason á landsliðsæfingu.
Ólafur Ingi Skúlason á landsliðsæfingu. Mynd/Pjetur
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu verður án krafta Ólafs Inga Skúlasonar í leiknum gegn Kýpur á morgun

Ólafur Ingi tognaði aftan í læri á æfingu með landsliðinu og missir því af leiknum. Óvíst er hvort hann geti verið með í útileiknum gegn Noregi á þriðjudag.

Aðrir leikmenn landsliðsins eru klárir í slaginn og Birkir Már Sævarsson hefur æft vel bæði í dag og í gær. Sprettirnir hans eru á sínum stað að sögn landsliðsþjálfarans Lars Lagerback.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×