Torres: Ég öskraði á Eden að gefa boltann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. október 2013 21:23 Fernando Torres. Mynd/NordicPhotos/Getty
Fernando Torres, framherji Chelsea, skoraði tvö mörk í 3-0 útisigri á þýska liðinu Schalke í Meistaradeildinni í kvöld en Þjóðverjarnir voru ekki búnir að fá á sig mark eftir tvo fyrstu leikina. „Það er mjög mikil samkeppni um framherjastöðuna í Chelsea-liðinu enda erum við með þrjá mjög góða framherja. Við spilum bara svo marga leiki þannig að við verðum allir að vera tilbúnir," sagði Fernando Torres við BBC eftir leikinn. Fernando Torres var þarna að skora fyrstu mörkin sín í Meistaradeildinni á þessu tímabili en hann var bara búinn að spila í tíu mínútur í tveimur fyrstu Meistaradeildarleikjunum fyrir leikinn í kvöld. Torres skoraði tvö fyrstu mörk Chelsea í leiknum og þau komu bæði með skalla eftir föst leikatriði frá Frank Lampard. Eden Hazard skoraði síðan þriðja markið undir lokin þegar hann gat auðveldlega leyft Torres að kóróna þrennuna. „Ég öskraði á Eden gefa boltann en ég er ánægður fyrir hans hönd og hann er að spila vel. Við verðum að halda áfram á þessari braut. Við erum með ungt lið, nýjan stjóra og nýja leikmenn. Það tekur tíma að spila liðið saman en við erum að bæta okkar leik," sagði Torres kátur.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Sjá meira