Ég er ekki í sama klassa og Tiger 10. apríl 2013 15:00 félagar Rory og Tiger eru mikið í umræðunni.nordicphotos/getty
Fyrsta stórmót ársins, Masters-mótið, hefst á Augusta-vellinum á morgun. Mikil spenna er líkt og venjulega fyrir mótinu. Flestra augu beinast að Nike-félögunum Tiger Woods og Rory McIlroy. Fjölmiðlar hafa reynt að stilla þeim upp sem helstu keppinautum fyrir mótið en Norður-Írinn McIlroy hefur reynt að draga úr öllu slíku tali. „Ég lít ekki á mig sem einhvern aðalkeppinaut Tiger Woods eða nokkurs annars kylfings. Ég held að Tiger sé búinn vera atvinnumaður tólf árum lengur en ég," sagði McIlroy. „Þegar talað er um einhverja keppinauta er rétt að bera saman árangur manna. Tiger hefur unnið 77 PGA-mót en ég sex. Hann hefur unnið fjórtán risamót en ég tvö. Ef ég væri að bera mig saman við hann væri ég að tala hann niður." Rory hefur átt erfiða síðustu mánuði en lék vel á móti í síðustu viku þar sem hann varð í öðru sæti. Hann virðist því vera að detta í gírinn á réttum tíma. „Mér líður vel og finnst ég vera tilbúinn. Ég er búinn að venjast nýju kylfunum og hef ekki yfir neinu að kvarta."
Golf Mest lesið Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Handbolti Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Körfubolti Féll á lyfjaprófi rétt fyrir Ólympíuleika í heimalandinu Sport Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Enski boltinn Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Handbolti Með fleiri mörk með langskotum en Ísland og samt með sex færri leiki spilaða Handbolti Hin efnilega Emelía lánuð til Kaupmannahafnar Fótbolti Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Handbolti Stefán Ingi seldur til Hollands fyrir metverð Fótbolti Pytlick hafði enga lyst á pönnukökum í Ráðhúsinu Handbolti Fleiri fréttir LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira