Búinn að hugsa um 80 metrana síðan ég var 14 ára gamall Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 31. júlí 2013 06:00 Guðmundur í eldlínunni norðan heiða um helgina. Hann ætlar á EM í Sviss næsta sumar og hefur þegar náð lágmarkinu. Mynd/Benedikt H. Sigurgeirsson „
Æfingarnar höfðu gengið vel og sjálfstraustið var alveg í botni eftir gott gengi,“ segir Guðmundur Sverrisson, 23 ára spjótkastari hjá ÍR. Guðmundur kastaði í fyrsta skipti yfir áttatíu metrana á Meistaramóti Íslands á Akureyri um helgina. Spjótið flaug 80,66 metra en enginn Íslendingur hafði kastað svo langt í um tvo áratugi. „Ég er búinn að hugsa um 80 metrana síðan ég byrjaði í frjálsum 14 ára gamall,“ segir Guðmundur sem skottaðist með félaga sínum á æfingu hjá ÍR í Breiðholtinu. Hann hafði ekki æft neinar íþróttir þegar þar var komið sögu en tók ástfóstri við spjótið. „Þetta hefur verið stóra markmiðið síðan ég var lítill og nú datt það inn. Það er mjög súrrealískt,“ segir Guðmundur um metrana áttatíu.Einar er góður sálfræðingur Guðmundur tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn þriðja árið í röð um helgina en bæting hans undanfarin tvö ár hefur verið með ólíkindum. Sumarið 2011 sigraði Guðmundur með kasti upp á 65,48 metra og í fyrra var sigurkastið 72,11 metrar. Guðmundur segist hafa bætt sig tíu sinnum á síðasta ári og fimm sinnum í ár. Aðspurður um hvað valdi nefnir hann þjálfara sinn og Íslandsmethafann, Einar Vilhjálmsson, til sögunnar. „Hann á jafnmikið í þessum árangri og ég,“ segir Guðmundur sem hefur æft undir leiðsögn Einars í rúmlega tvö ár. Einar var í þjálfarateyminu norðan heiða um helgina og Guðmundur segir hafa skipt miklu að Einar var á svæðinu. „Hann veit allt. Svo er hann líka svo góður sálfræðingur. Veit alveg hvað hann á að segja til að koma í gang ef eitthvað gengur illa. Það er líklega hans besti styrkur. Hann er mjög góður að meðhöndla alls konar tiktúrur hjá íþróttamönnum.“Nemur jarðfræði Guðmundur nemur jarðfræði í Háskóla Íslands en stóran hluta ævinnar hefur hann varið í sveit. Hann varði flestum sumrum í Skorradal í æsku og fór auk þess í sauðburð til Alla og Dúnu á Húsatóftum á Skeiðum. „Áhuginn á jarðfræðinni kviknaði líklega á labbi um fjöll og firnindi,“ segir Guðmundur sem ætlar sér stóra hluti í spjótkastinu. Hann er nú þriðji kastlengsti spjótkastari Íslandssögunnar á eftir Einari og Sigurði Einarssyni. „Siggi Matt (Matthíasson) hringdi í mig laugardaginn og sagði: „Er þetta númer þrjú?“ segir Guðmundur sem er kærkominn viðbót í áttatíu metra klúbbinn sem hefur nú fjóra meðlimi.Ætlar til Ríó 2016 Guðmundur nefnir þolinmæði til sögunnar þegar hann er beðinn um að lýsa kostum sínum. „Ef þú ætlar að ná langt í einhverju þarftu að plana, halda þig við það og vera þolinmóður. Hlutirnir ganga ekki alltaf,“ segir Guðmundur. Meiðsli eru afar tíð hjá spjótkösturum og hefur ÍR-ingurinn fengið sinn skerf. „Ég hef verið slæmur í olnboganum síðan 2007. Ég fór í uppskurð árið 2007 en hef aldrei orðið góður,“ segir Guðmundur. Hann sættir sig við að olnboginn muni angra hann en bætir þó við að hann hafi verið minna til trafala undanfarið. Hann horfir björtum augum fram á veginn og bendir á að kastið sitt hefði dugað honum til þátttöku í Ólympíuleikunum í London síðastliðið sumar. Hugurinn leitar á stærsta íþróttavettvang heimsins. „Maður verður alltaf að láta sig dreyma. En svo þarf maður að setja sér markmið og standa við þau. Það er klárlega markmið að fara á Ólympíuleikana í Ríó 2016,“ segir Guðmundur. Markmiðið er svo sannarlega raunhæft enda ÍR-ingurinn ungur á mælikvarða kastara í frjálsum íþróttum. „Tölfræðin segir að eftir því sem þú nálgast þrítugsaldurinn verðir þú betri.“
Frjálsar íþróttir Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór Íslenski boltinn Bruno settur á bekkinn Enski boltinn Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Íslenski boltinn „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Fótbolti Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport Fleiri fréttir Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton | Heldur óvænt gengi Brighton áfram? Manchester United - Bournemouth | Heldur martröðin áfram? Bruno settur á bekkinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór Árni Ágúst grátlega nálægt því að bæta met Emin Kadri heldur áfram að vera ósigraður „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Dagskráin: Níu klukkutíma NFL-veisla og Liverpool og Man. United í beinni Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark Kimi Antonelli á ráspólnum á morgun „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ „Madrid með Mourinho vinnur titla“ „Markmið hjá þessum klúbbi að vinna sem flesta titla“ „Við ætlum bara að bæta í og gera enn þá betur“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Sjá meira