Jóhann Berg: Vonandi hangi ég inni í byrjunarliðinu Henry Birgir Gunnarsson skrifar 7. september 2013 08:00 Mynd/Valli „
Það var auðvitað frábær tilfinning að skora þrjú mörk í svona mikilvægum leik,“ sagði Jóhann Berg Guðmundsson, hetja Íslendinga, eftir leikinn gegn Sviss í gær. Öll mörk Jóhanns í leiknum voru gullfalleg vinstri fótar skot upp í bláhornið, gjörsamlega óverjandi fyrir markvörð Svisslendinga. „Það er vissulega magnað að koma svona til baka og ná í þetta mikilvæga stig. Maður vonar bara núna að ég hangi inni í byrjunarliðinu fyrir leikinn gegn Albönum,“ sagði Jóhann Berg og glotti við tönn. „Ég hef líklega ekki séð flottari þrennu þótt ég segi sjálfur frá, en maður fær mikið sjálfstraust með auknum spilatíma hjá félagsliðinu mínu AZ Alkmaar. Það hefur mikið að segja og manni líður vel inni á vellinum. Ég skoraði líklega síðast þrennu á yngra ári í fjórða flokki.“ Íslenska landsliðið þarf samt sem áður að lagfæra varnarleik sinn fyrir leikinn á þriðjudaginn. „Þeir fá að skora allt of ódýr mörk og liðið þarf að skoða varnarleik sinn vel fyrir leikinn gegn Albönum. Núna þurfum við stuðning og ég hvet alla til að mæta á Laugardalsvöllinn. Þetta verður einn mikilvægasti leikur sem Ísland hefur spilað.“-
HM 2014 í Brasilíu Video kassi sport íþróttir Mest lesið Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Fótbolti Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Enski boltinn Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Handbolti Spilar áfram með Messi í Miami Fótbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ Körfubolti Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Körfubolti Ungstirnið skallaði meistarana áfram Enski boltinn Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Spilar áfram með Messi í Miami Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Vålerenga úr leik eftir tap fyrir stöllum Glódísar Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Varði fjögur víti til að tryggja PSG titilinn Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur Fjórir frá hjá Blikum á morgun Benítez lét Sverri byrja og flaug áfram í bikarnum KSÍ missti af meira en milljarði króna City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Nígeríumenn halda HM-draumnum á lífi með kvörtun til FIFA Man United ósátt við Marokkó og FIFA „Fyrir mér er Flamengo stærra en Real Madrid“ Átta þúsund krónur fyrir miða á úrslitaleik HM í stað 529 þúsund Sú besta í heimi komst ekki á blað hjá íslenska landsliðsþjálfaranum Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Félag Arnórs Ingva og Ísaks seldi þjálfara sinn Öðruvísi lið en áður hafa sóst í Frey: „Vita hvar ég stend“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Milljarðs evra munur á liðunum: Börsungar lentu í brasi gegn þriðju deildar liði Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Sjáðu flottasta mark í heimi árið 2025 Bonmatí og Dembele best í heimi Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Rodgers tekinn til starfa í Sádi-Arabíu Gestgjafar HM bjóða Íslandi heim í leik Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Mbappé vann PSG og fær níu milljarða Sjá meira