Tímatengd list nema sýnd í Nýlistasafninu Friðrika Benónýsdóttir skrifar 6. desember 2013 11:00 Þau sem sýna Andrea Arnarsdóttir, Andri Björgvinsson, Arnar Bergmann Sigurbjörnsson, Bergrún Anna Hallsteinsdóttir, Borghildur Tumadóttir, Hjálmar Guðmundsson, Ylva Frick, Sara Ósk Rúnarsdóttir, Sigríður Þóra Óðinsdóttir og Síta Valrún.
Tíu nemendur á öðru ári í myndlistardeild Listaháskóla Íslands sýna afrakstur fimmtán vikna námskeiðs um tímatengda miðla í Nýlistasafninu frá og með kvöldinu í kvöld. Á námskeiðinu var unnið með kvikmyndatækni, gjörninga, hljóð- og myndbandsverk og allt sem talist getur til tímatengdra miðla. Sýningin nefnist Innrím og nemendurnir sýna þar afrakstur námskeiðsins, en þeir nálgast viðfangsefnið á fjölbreytilegan máta. „Við getum sagt að sýningin sé niðurstaða vangaveltna nemendanna um tímatengda list,“ segir Gunnhildur Hauksdóttir, safnstjóri Nýlistasafnsins og einn leiðbeinendanna á námskeiðinu. „Þau fá aðstöðu til að setja verkin upp hér enda er löng hefð fyrir nánu samstarfi Listaháskólans og Nýlistasafnsins. Þetta er í annað sinn sem við tökum þessa nemendur að okkur en Nýlistasafnið er auðvitað sögulega séð það safn sem mesta rækt hefur lagt við tímatengda list, gjörninga, tilraunir með kvikmyndir og svo framvegis.“ Tveir gjörningar verða fluttir á opnuninni í kvöld: Presto, Adagio, Tempo di Menuetto eftir Andra Björgvinsson klukkan 20.30 og Þungi eftir Hjálmar Guðmundsson klukkan 21.30. Gunnhildur segist ekki eiga von á því að þeir verði endurteknir á sýningartímanum. Sigurður Guðjónsson leiddi námskeiðið en auk hans kom fjöldi leiðbeinenda við sögu. Nemendurnir sem sýna eru: Andrea Arnarsdóttir, Andri Björgvinsson, Arnar Bergmann Sigurbjörnsson, Bergrún Anna Hallsteinsdóttir, Borghildur Tumadóttir, Hjálmar Guðmundsson, Ylva Frick, Sara Ósk Rúnarsdóttir, Sigríður Þóra Óðinsdóttir og Síta Valrún. Sýningin stendur til 15. desember.
Menning Mest lesið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi Lífið samstarf Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira