Bæjarar rasskelltu Schalke alveg eins og Real Madrid Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. mars 2014 19:37 Arjen Robben skoraði þrennu í kvöld. Vísir/Getty
Bayern München hélt áfram sigurgöngu sinni í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld þegar liðið vann 5-1 stórsigur á Schalke 04 en þessi lið eru bæði í Meistaradeildinni. Hollendingurinn Arjen Robben skoraði þrennu í leiknum. Schalke 04 tapaði 1-6 á móti Real Madrid í vikunni í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar og liðið fékk annan rassskell í dag. Bæjarar voru komnir í 4-0 eftir aðeins 28 mínútna leik en sýndu gestunum miskunn eftir það og bættu ekki við fimmta markinu fyrr en þrettán mínútur voru eftir. Schalke var þá búið að minnka muninn í 4-1 en markið var sjálfsmark hjá Rafinha. David Alaba skoraði fyrsta mark Bayern á 3. mínútu og lagði einnig upp þriðja markið fyrir Mario Mandžukić á 24. mínútu. Arjen Robben skoraði annað og fjórða markið á 15. og 28. mínútu og innsiglaði síðan þrennuna úr víti á 77. mínútu. Bayern München er með 20 stiga forskot á Borussia Dortmund sem vann 3-0 sigur á Nürnberg fyrr í dag. Mats Hummels, Robert Lewandowski og Henrik Mkhitaryan skoruðu mörk liðsins.
Þýski boltinn Mest lesið Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Fótbolti Fleiri fréttir Real Madrid - Real Sociedad | Orri heimsækir Madríd Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Breiðablik - Csíkszereda | Blikar stefna aftur á Evrópubikarinn Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Sjá meira