Wu-Tang Clan gefur út nýja plötu - en aðeins í einu eintaki Karl Ólafur Hallbjörnsson skrifar 27. mars 2014 19:31 Rapparinn Method Man tryllir lýðinn á tónleikum í Þýskalandi. Vísir/AFP
Rappsveitin Wu-Tang Clan hefur tekið upp nýja hljómplötu sem á að heita "Once Upon A Time In Shaolin". Það sem er einstakt við þessa plötu er að hún verður gefin út og seld í aðeins einu eintaki. Sveitin tilkynnti þetta í viðtali við tímaritið Forbes. Verkið verður sýnt á söfnum um heim allan, en gestir munu geta hlustað á hana í sérstökum heyrnartólum til þess að fyrirbyggja óæskilegar upptökur. Platan inniheldur einhver 31 lög og verður 128 mínútna löng. Meðal annarra safna er Tate Modern í Lundúnum orðað við að ætla að standa fyrir sýningu. Ekkert er þó staðfest. Seinna meir þegar platan hefur farið sína eigin óhefðbundnu „tónleikaferð" um heim allan mun sveitin selja hana til hæstbjóðanda - og verðið mun að öllum líkindum hljóða upp á milljónir bandaríkjadala. Markmið sveitarinnar með þessum óhefðbundnu útgáfuaðferðum er að endurvekja þá hugmynd að tónlist sé raunverulegt listform, rétt eins og málverk eftir Monet. Þá gæti efnaður einstaklingur keypt plötuna og haldið henni fyrir sjálfan sig, eða stór útgáfufyrirtæki keypt hana og gefið út á hefðbundinn hátt. Rappsveitin gaf nýlega út lagið Keep Watch. Hægt er að hlusta á það í spilaranum hér fyrir neðan.
Tónlist Tengdar fréttir Wu-Tang birta myndir af Íslendingi „Það var ótrúlegt að fá kveðju frá hetjunni sinni,“ segir Arnaldur Grétarsson. Skegg hans hefur vakið athygli meðlima Wu-Tang Clan. 27. mars 2014 15:03 Hlustaðu á nýja lagið frá Wu Tang Clan Wu Tang komu öllum að óvörum og gáfu út lag. 19. mars 2014 23:14 Mest lesið Dóri DNA og Magnea greiddu 126 milljónir fyrir einbýli í Skerjafirði Lífið Hafði ekki hugmynd um að einstakt hjól sitt væri týnt Lífið Segir föður sinn hafa verið við hestaheilsu Lífið Fengu aðstoð frá heimamanni: „Þannig að við séum ekki eins og hauslausar hænur“ Lífið Gene Hackman og eiginkona hans fundust látin Lífið „Frelsi til að gera allt sem þig langar til“ Tónlist Einföld ráð fyrir glæsilegra heimili Lífið Lada Sport okkar tíma Lífið samstarf Bjössi og Dísa skáluðu í nýja húsinu Lífið Var farin að fá kvíðaköst þegar dóttirin bað um að fara í göngutúra Lífið Fleiri fréttir „Frelsi til að gera allt sem þig langar til“ Þessi eru tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna Bein útsending: Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna Draumurinn rættist að syngja með Bubba Gekk 20 metra á 35 mínútum í tíu gráðu frosti The Smashing Pumpkins til Íslands Þau fóru áfram í úrslit söngvakeppninnar Sjá meira
Wu-Tang birta myndir af Íslendingi „Það var ótrúlegt að fá kveðju frá hetjunni sinni,“ segir Arnaldur Grétarsson. Skegg hans hefur vakið athygli meðlima Wu-Tang Clan. 27. mars 2014 15:03
Hlustaðu á nýja lagið frá Wu Tang Clan Wu Tang komu öllum að óvörum og gáfu út lag. 19. mars 2014 23:14