Fyrir tímatökuna var ljóst að atvik á æfingum í gær myndi kosta Jean-Eric Vergne 10 sæti á ráslínu. Hægra afturdekkið losnaði undan Toro Rosso bíl hans á brautinni.
Pastor Maldonado á Lotus, lenti á vegg strax á fyrsta hring og braut fjöðrunarbúnað og gat ekki tekið meiri þátt í tímatökunni. Ökumannsmistök hans ollu því að rauðum flöggum var veifað og tímatakan stöðvuð til að hægt væri að fjarlægja bíl Maldonado.
Maldonado datt út í fyrstu lotu ásamt Kamui Kobayashi og Marcus Ericsson á Caterham, Jules Bianchi og Max Chilton á Marussia og Adrian Sutil á Sauber.
„Ég veit ekki hvernig en einhvern veginn höfum við gert bílinn verri,“ sagði Hamilton í talstöðinni í fyrstu lotunni.
Það munaði innan við hálfri sekúndu á bílunum í 3. til 16. sæti í fyrstu lotunni.

Vélin í bíl Magnussen bilaði og hann gat því ekki sett tíma í annarri lotu.
Þriðja lotan hófst á því að Sebastian Vettel stöðvaði á brautinni og kvartaði yfir því í talstöðinni að hann hefði ekki afl. Rauðum flöggum var veifað aftur og tímatakan stöðvuð tímabundið, meðan Red Bull bíllinn var fjarlægður.

1.Lewis Hamilton - Mercedes
2.Nico Rosberg - Mercedes
3.Daniel Ricciardo - Red Bull
4.Valtteri Bottas - Williams
5.Romain Grosjean - Lotus
6.Kimi Raikkonen - Ferrari
7.Fernando Alonso - Ferrari
8.Jenson Button - McLaren
9.Felipe Massa - Williams
10.Sebastian Vettel - Red Bull - setti ekki tíma
11.Nico Hulkenberg - Force India
12.Sergio Perez - Force India
13.Daniil Kvyat - Toro Rosso
14.Esteban Gutierrez - Sauber
15.Kevin Magnussen - McLaren
16.Jean-Eric Vergne - Toro Rosso - mun ræsa aftastur
17.Adrian Sutil - Sauber
18.Max Chilton - Marussia
19.Jules Bianchi - Marussia
20.Marcus Ericsson - Caterham
21.Kamui Kobayash - Caterham
Pastor Maldonado - Lotus - setti ekki tíma
Keppnin er á dagskrá á Stöð 2 Sport klukkan 11:30.