Hvað kom fyrir Mercedes, hvað kom fyrir Marussia, hvað veðrur um Adrian Newey? Allt þetta og margt fleira í Bílskúrnum, léttu hliðinni á Formúlu 1 hér á Vísi.

Liðið sem virtist frá fyrstu æfingum fyrir tímabilið vera óstöðvandi og nánst með báða titlana í höndum sér vann ekki keppni helgarinnar. Þó má ekki gleyma afar góðum akstri Nico Rosberg sem varð annar í keppninni og tryggði sér mikilvæg 18 stig.
Rosberg ók með 160 hestöflum minna en venjulega, vegna þess að kerfið sem býr til raforku við hemlun afturhluta bíls hans hætti að virka. Þá er afar líklegt að liðið hafi skipt bremsuhlutfallinu þannig að framendinn hafi nánast algjörlega séð um hemlunina. Það gerir annað sæti Rosberg aðdáunarvert.
Lewis Hamilton tókst hins vegar ekki að aka eins vel í kringum vandann sem gerði vart við sig á sama tíma hjá honum og Rosberg. Eftir keppnina vildi Hamilton meina að hitinn sem fylgdi því að keyra fyrir aftan Rosberg hafi valdið því að hann þurfti að hætta keppni. Rosberg hafi haft kaldara loft enda í forystu og því átt auðveldara með að ráða við vandamálið.

Eftir ógleymanlegt níunda sæti og fyrstu stig liðsis í Mónakó fyrir tveimur vikum gekk ekki eins vel hjá Marussia í Kanada. Max Chilton missti stjórn á bíl sínum á fyrsta hring. Hann rann þá stjórnlaust á næsta bíl sem var liðsfélagi hans og hetja Marussia í síðustu keppni Jules Bianchi.
Chilton fór einfaldlega of hratt inn í beygjuna þar sem var of lítið pláss með skelfilegum afleiðingum. Öryggisbíllinn var kallaður út og stjórnaði umfeðrinni á brautinni í 6 hringi. Þetta óhapp batt enda á met Chilton en hann hafði til þessa lokið öllum Formúlu 1 keppnum sem hann hafði ræst af stað í. Eftir 25 keppnir í röð kom að því að hann lauk ekki keppni. Chilton verður færður aftur um 3 sæti á ráslínu í næstu keppni í refsingarskyni fyrir atvikið.

Maður dagsins var án nokkurs vafa ástralski ökumaðurinn með stóra brosið. Daniel Ricciardo vann sína fyrstu keppni í Kanada á sunnudaginn. Hann er þekktur fyrir að vera ávallt brosandi en á sunnudaginn náði brosið nánast hringinn. Hann átti sigurinn skilið eftir að hafa ekið vel allt tímabilið. Hugsanlega er þetta sárabót frá því í Ástralíu þegar þriðja sætið var dæmt af honum vegna of mikillar eldsneytisnotkunar.
Liðsfélagi Ricciardo, heimsmeistarinn Sebastian Vettel fagnaði með honum í lok keppninnar. Ricciardo hefur ekki gefið Vettel neitt eftir síðan hann kom til liðs við Red Bull. Eftir sjö keppnir hefur Vettel aðeins tvisvar náð betri tíma í tímatöku en það er breyting síðan Mark Webber var liðsfélagi hans.

Felipe Massa á Williams leit á tímabili út fyrir að vera að tryggja sér fyrsta sætið í keppninni. Hann var fyrsti ökumaðurinn sem ekur ekki fyrir Mercedes til að leiða hring í keppni á tímabilinu. Allt kom fyrir ekki þvi Massa þurfti að taka sitt annað þjónustuhlé rétt eftir að hann komst í forystu og tapaði henni þar með. Hann var að keppast við að ná henni aftur þegar hann lenti í árekstri við Sergio Perez á Force India.
Massa gerði sig líklegan til þess að taka fram úr Perez þegar Perez beygði í veg fyrir hann með þeim afleiðingum að báðir skautuðu stjórnlaust á næsta varnarvegg. Vettel sem var þarna rétt hjá, slapp naumlega þegar Massa rann rétt fyrir framan bíl Vettel og Perez rétt fyrir aftan bíl heimsmeistarans.
Perez verður færður aftur um fimm sæti á ráslínu í næstu keppni fyrir að valda þessum árekstri. Báðir voru ökumennirnir fluttir á sjúkrahús í nágrenninu eftir atvikið en báðir sluppu ómeiddir. Höggið mældist 27 G samkvæmt mæli í bíl Massa.

Blikur hafa verið á lofti um breytingar á starfsvettvangi Adrian Newey í þó nokkurn tíma. Nú hefur fengist staðfest að hann er ekki á förum frá Red Bull. Newey hefur haft yfirumsjón með hönnun allra bíla Red Bull liðsins og átt stóran þátt í velgengni þess á undanförnum árum.
Red Bull hefur samið við hinn eftirsótta hönnuð, en breytinga er að vænta. Newey mun ekki hafa eins mikið að gera með Formúlu 1 lið orkudrykkjarframleiðandans og hann gerir nú. Eftir að yfirstandandi tímabili lýkur mun hann snúa sér að öðrum verkefnum. Þar hefur helst verið nefndur Ameríku bikarinn, sem er siglingakeppni. Sem væri alveg ný áksorun fyrir hann.
Red Bull var mikið í mun að semja við Newey því erkifjendurnir í Ferrari höfðu sett sig í samband við kappann. Orðið á brautinni segir að þar hafi verið búið að prenta út samninginn og finna til penna til að skrifa undir. Það hefði verið mikið áfall fyrir Red Bull ef Newey hefði farið til ítalska liðsins. Það getur þó allt gerst í Formúlu 1 og skyldi engan undra ef Adrian Newey sést í rauðu innan nokkurra ára.

Þær fréttir bárust um helgina að samið hefur verið við mótshaldara í Kanada um næstu 10 ár, það eru góðar fréttir fyrir áhugafólk um kappakstur. Sérstaklega ef komandi keppnir þar verða eins spennandi og keppnin í ár.
Næsta keppni er svo í Austurríki þann 22. júní, á heimavelli Red Bull sem mun eflaust þyrsta í að endurtaka leikinn frá því í Kanada.