Spennan magnast á Gazasvæðinu Heimir Már Pétursson skrifar 8. júlí 2014 20:00
Spenna magnast milli Ísraelsmanna og Palestínumanna á Gaza og er jafnvel búist við allsherjar innrás ísraelshers inn á svæðið. Fimm Palestínumenn hafa fallið í tugi loftárása Ísraelsmanna í dag. Ísraelski herinn hefur brugðist af mikilli hörku við flugskeytaárásum Hamasliða á Gaza á þorp í Ísrael. Þannig féllu fimm menn á Gaza í dag, þar af fjórir í bíl sem varð fyrir loftárás á miðborg Gaza. Einn hinna föllnu er sagður vera Mohammed Shaaban liðsforingi í hernaðararmi Hamas. Þetta eru mestu átök frá því í átta daga stríði Ísraelsmanna og Palestínumanna árið 2012 og hefur ísraelski herinn gefið út að allsherjar innrás hersins á Gaza geti verið yfirvofandi á næstunni, en herinn hefur fengið leyfi til að kalla út um 40 þúsund manna varalið. Tugir manna hafa særst í árásum Ísraelsmanna sem hafa sprengt upp bæði hernaðarleg skotmörk og tugi heimila. Talsmenn ísraelshers segja um eitt hundrað loftskeytaárásir hafa verið gerðar á Ísrael í dag en engar fregnir eru af mannfalli vegna þeirra þótt tveir hafi særst. Ísraelsmenn hafa handtekið hundruð Palestínumanna frá því þrír ungir Ísraelsmenn voru myrtir hinn 12 júní síðast liðinn við landamærin að Vesturbakkanum og átökin hafa harnað enn frekar eftir að hópur ísraelskra ungmenn drap palestískan ungling með því að brenna hann lifandi.
Gasa Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira