Tiger byrjar hræðilega í dag | Mickelson spilaði á tveimur undir Tómas Þór Þórðarson skrifar 18. júlí 2014 13:41 Tiger Woods missti boltann út fyrir braut á fyrsta teig. vísir/getty
Tiger Woods byrjar ekki vel á öðrum hring opna breska meistaramótsins í golfi, en Tiger lenti í miklum erfiðleikum á fyrstu braut og fékk tvöfaldan skolla. Hann fylgdi því eftir með skolla á annarri holu og er því kominn á parið, en Tiger spilaði á 69 höggum í gær eða þremur höggum undir pari.Phil Mickelson er kominn aftur á parið en hann spilaði á 70 höggum í dag eða tveimur höggum undir pari. Stóri Phil spilaði á 74 höggum í gær og er því samtals á pari, en hann kemst auðveldlega í gegnum niðurskurðinn.Phil Mickelson slær í dag.vísir/gettyÁstralinn Adam Scott lék á einu höggi yfir pari í dag og er samtals á þremur höggum yfir pari, en Bandaríkjamennirnir D.A. Points og Gary Woodland eru báðir komnir á parið eftir að spila á 69 höggum í dag. Ítalinn FrancescoMolinari og Rory McIlroy eru efstir á sex höggum undir pari sem stendur. Molinari er búinn með sex holur en Rory er nýfarinn af stað. Niðurskurðurinn stefnir í tvö högg yfir pari, en þar fyrir neðan eru menn á borð við BubbaWatson, ÁngelCabrera og Miguel Ángel Jíminez.Staðan á opna breska.Allir keppnisdagarnir á opna breska meistaramótinu í golfi eru í beinni útsendingu á Golfstöðinni.
Golf Mest lesið Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Enski boltinn í tíu klukkutíma Sport Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Fótbolti Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Enski boltinn „Komum eins og aumingjar inn í þennan leik“ Körfubolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn „Jólasteikin mun bragðast betur í ljósi þessa sigurs“ Körfubolti KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Handbolti Fleiri fréttir Mótið hálfnað og Guðrún Brá enn í góðri stöðu Guðrún Brá efst eftir fyrsta hring í Marokkó Íslensku stelpurnar misstu einn keppnisdag vegna eldingarhættu Áminntir fyrir að drekka einn bjór: Sagðir drukknir og hafa tekið „Happy Gilmore-sveiflu“ Ástand í Noregi: Hátt upp í fimm þúsund kylfingar án klúbbs Bananahýði gerði Rory McIlroy erfitt fyrir Dáður en umdeildur kylfingur látinn Gríðarleg fjölgun kylfinga: „Aðstaðan sprungin í höfuðborginni“ Barnabarn Donalds Trump: „Ég sló mörg góð högg, bara á ranga staði“ Vildi ekki svara spurningum um afa sinn, Donald Trump Tóku símana af stelpunum alla keppnisferðina Sjá meira