Heldur dregur úr mannfalli á Gaza Heimir Már Pétursson skrifar 4. ágúst 2014 18:49
Aðeins dró úr átökum á Gaza í dag eftir að Ísraelsstjórn lýsti einhliða yfir sjö tíma vopnahléi. Átta ára stúlka féll þó í sprengjuárás í Gazaborg og 29 særðust manns særðust. Ísraelsher er byrjaður að fækka hermönnum innan landamæra Gaza og telja sumir að þeir séu að undirbúa að hætta hernaðinum. Þeir lýstu einhliða yfir sjö tíma vopnahléi frá klukkan átta í morgun að íslenskum tíma, nema í borginni Rafha á suður gazaströnd. Talið er að með hernaði sínum þar vilji Ísraelsmenn reyna að gera hamasliðum erfiðara fyrir með að halda við vopnabirgðum sínum. En aðeins örfáum mínútum eftir að sjö tíma vopnahléð átti að hafa tekið gildi, féll sprengja á hús í Gazaborg, þar sem átta ára stúlka féll og 29 manns særðust. Lögregla í Jerúsalem segir að Palestínumaður frá austurhluta borgarinnar hafi ekið skurðgröfu á vegfaranda í miðborginni. Vegfarandinn slasaðist illa og lést skömmu síðar. Eftir að hafa ekið á manninn var gröfunni ekið á mannlausan strætisvagn og honum velt. Lögregla sem kom á vettvang skaut manninn til bana. Þá slasaðist ísraelskur hermaður í skotárás í borginni í morgun. Mikil þörf er á öllum nauðsynjum á Gaza, hvort sem það er matur eða lyf og læknisvörur. Þrátt fyrir átökin komust hjálpargögn inn á Gaza í gegnum Karem Shalom landamærastöðina í morgun. Um 1.800 manns, meiirihlutinn óbreyttir borgarar hafa fallið á Gaza og rúmlega níu þúsund særst. Sextíu og sex Ísraelar, þar af þrír óbreyttir borgarar hafa fallið frá því átökin hófust.
Gasa Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira