LeBron og Lillard valdir bestir í vikunni í NBA | Myndbönd Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. nóvember 2014 20:20 LeBron James. Vísir/Getty
LeBron James, framherji Cleveland Cavaliers, og Damian Lillard, bakvörður Portland Trail Blazers, voru valdir bestu leikmenn vikunnar í NBA-deildinni í körfubolta. LeBron var valinn bestur í Austurdeildinni en Lillard var valinn bestur í Vesturdeildinni.LeBron James fór á kostum með Cleveland Cavaliers sem vann alla þrjá leiki sína í vikunni. LeBron var með 35,0 stig og 7,7 stoðsendingar að meðaltali í leik í þessum þremur leikjum en hann hitti úr 59 prósent skota sinna og tók auk þess 7,0 fráköst að meðaltali í leik. Besti leikur hans var á móti Boston Celtics þegar hann skoraði 41 stig.Damian Lillard hjálpaði liði Portland Trail Blazers að vinna alla þrjá leiki vikunnar. Lillard var með 28,0 stig og 8,7 stoðsendingar að meðaltali í leik en hann hitti úr 14 af 20 þriggja stiga skotum sínum í þessum þremur leikjum sem gerir 70 prósent þriggja stiga skotnýtingu. Besti leikur Lillard í vikunni var á móti Brooklyn Nets þegar hann var með 28 stig og 10 stoðsendingar.Aðrir sem komu til greina í valinu fyrir vikuna 10. til 16. nóvember voru Paul Millsap hjá Atlanta Hawks, Kyrie Irving hjá Cleveland Cavaliers, Monta Ellis hjá Dallas Mavericks, James Harden hjá Houston Rockets, A.J. Price hjá Indiana Pacers, Chris Paul hjá Los Angeles Clippers, Mike Conley hjá Memphis Grizzlies, Anthony Davis hjá New Orleans Pelicans og Gordon Hayward hjá Utah Jazz.
NBA Mest lesið Harma rasíska og transfóbíska grein liðsfélaga Sveindísar Fótbolti Alfreð hissa: Veit að Íslendingar geta mun betur Handbolti Haaland fór sem Jókerinn að versla bleyjur Enski boltinn Segir sönginn um Jota á tuttugustu mínútu hafa áhrif á leik Liverpool Enski boltinn Gjöf frá mömmu vatt rækilega upp á sig Sport Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Körfubolti Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Körfubolti Fullkomin þrenna kom Lampard úr sjöunda himni Enski boltinn Kóngarnir í Færeyjum: Töpuðu ekki leik allt tímabilið Fótbolti Dagskráin í dag: Doc Zone, frábærir leikir í enska og Bónus-deild kvenna Sport Fleiri fréttir Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Blikar áfram með fullt hús stiga ÍR - Ármann 96-83 | Nýliðarnir enn í leit að fyrsta sigrinum „Bara feginn að við fundum þó leið“ Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum „Við þurfum að vera betri varnarlega“ Íslenski körfuboltinn og Grindavík verðlaunuð NBA-leikmaður með krabbamein Haukur Helgi: Höfum ekki verið að spila góðan körfubolta „Getum verið fjandi góðir“ Uppgjörið: Álftanes-Njarðvík 93-92 | Heitur Haukur var hetjan á Álftanesinu Uppgjörið: Keflavík - Þór Þ. 86-82 | Þarf ekki alltaf að vera fallegt ef það virkar „Varnarleikur snýst eiginlega bara um að nenna“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 55-90 | Taplausir Grindvíkingar kjöldrógu Val „Búnir að sýna hvað við getum verið lélegir“ KR - ÍA 109-75 | KR-ingar sýndu allar sínar bestu hliðar þegar þeir burstuðu Skagamenn Íslandsmeistararnir frá því fyrir sextíu árum heiðursgestir í kvöld „Hann ætti bara að skrifa afsökunarbiblíuna“ Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 85-84| Njarðvík fyrstar til að leggja Grindavík af velli Ótrúleg dramatík í Garðabæ og á Sauðárkróki Landsliðsmennirnir öflugir í Evrópu Jordan gagnrýnir álagsstjórnun í NBA: Þú hefur skyldu til að láta sjá þig Skiptiborð hjá stelpunum í kvöld Var með skattinn á hælunum þegar hann fór í veðmálabraskið Bíll Shaquille O'Neal enn ófundinn Martin öflugur í góðum sigri Öllum leikjum Bónus-deildar kvenna í kvöld frestað Stólarnir ekki í vandræðum á Egilsstöðum Enginn Lakers-maður hafði náð þessu í meira en 52 ár Sjá meira