Busquets bjargaði Barcelona Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. nóvember 2014 00:01 Neymar sækir að marki Valencia í leiknum. vísir/getty
Barcelona beið fram á síðustu með að skora gegn Valencia á Mestalla, en Sergio Busquets skoraði eina mark leiksins á 93. mínútu. Talsverður hiti var í leiknum og dómarinn David Fernández hafði í nógu að snúast. Eftir hálftíma leik voru þrír af fjórum í varnarlínu Barcelona komnir með gult spjald. Luis Suárez komst næst því að skora í fyrri hálfleik, en Diego Alves varði skot hans úr dauðafæri. Suárez gerði sig aftur líklegan á 58. mínútu, en skot hans af stuttu færi fór framhjá. Úrúgvæinn kom boltanum loks í netið á 69. mínútu, en markið var dæmt af vegna rangstöðu sem var rangur dómur. Tveimur mínútum síðar komst Alsíringurinn Sofiane Feghouli einn í gegnum vörn Barcelona en Bravo varði skot hans. Skömmu síðar þurfti Bravo aftur að taka á honum stóra sínum þegar hann varði skot Álvaros Negrado. Barcelona jók pressuna á lokamínútum og sú pressa bar árangur á þriðju mínútu í uppbótartíma þegar Busquets þrumaði boltanum í netið af stuttu færi eftir að Alves hafði varið skalla Neymars. Með sigrinum endurheimti Barcelona annað sætið í spænsku deildinni, en liðið er nú tveimur stigum á eftir toppliði Real Madrid. Valencia situr hins vegar í 5. sæti með 24 stig.
Spænski boltinn Mest lesið Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Fótbolti „Komum eins og aumingjar inn í þennan leik“ Körfubolti Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina Handbolti KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Handbolti Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Enski boltinn „Jólasteikin mun bragðast betur í ljósi þessa sigurs“ Körfubolti Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti Stjarnan - Álftanes 108-104 | Unnu grannaslaginn naumlega Körfubolti Fleiri fréttir Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Immobile skaut Bologna í úrslit Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Hrannar Snær til Noregs Breiðablik, Valur og Þór/KA fengu milljónir vegna EM Elías mættur til meistaranna Syrgir góðan félaga í Åge: „Ótrúlega leiðinlegt að hann sé nú farinn“ KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Karólína Lea því miður of snemma í jólafrí Alexander Isak fékk sænska gullboltann Hilmar Árni til starfa hjá KR „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Helmingur landsliðskvenna er undir lágmarkslaunum „Grimmileg áminning um hversu harkalegt og grimmt lífið getur verið“ Segir fjórðung í bók Óla ósannan Í fyrsta sinn rukkað inn á Fan Zone á HM Davíð sendir hjartnæma kveðju til Hareide Svona endaði Sambandsdeildin: Finnarnir áfram eftir jafntefli við Palace Strasbourg - Breiðablik 3-1 | Hetjuleg barátta dugði skammt Napoli í úrslit í Sádi-Arabíu Åge Hareide látinn Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn „Við þurfum bara að keyra á þetta“ Segir Nóel Atla frábært dæmi um það þegar hlutirnir gangi upp Glódís gæti þurft að ryðja Man. Utd og Barcelona úr vegi að úrslitaleiknum Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Evrópusumma Blika komin í 800 milljónir og gæti nálgast milljarð í kvöld Sjá meira