Fótbolti

Bíða eftir upp­lýsingum um hráka Ísraelans

Sindri Sverrisson skrifar
Leikmaður Ísraels á að hafa hrækt á þjálfara Írlands þegar flautað hafði verið til hálfleiks í Serbíu í fyrrakvöld.
Leikmaður Ísraels á að hafa hrækt á þjálfara Írlands þegar flautað hafði verið til hálfleiks í Serbíu í fyrrakvöld. Getty/Stephen McCarthy

UEFA mun meta það út frá skýrslum frá dómara og eftirlitsmanni hvort Ísraelum verði refsað fyrir það sem gekk á í hálfleik leiks Írlands og Ísraels í Þjóðadeildinni á sunnudag.

Írskir miðlar greindu frá því að Damien Doyle, einn aðstoðarmanna Heimis Hallgrímssonar í þjálfarateymi Íra, hefði sakað leikmann Ísraels um að hrækja á hann. Þessu hefðu serbneskir öryggisverðir meðal annars orðið vitni að.

Spænski dómarinn Juan Martínez Munuera mun svo hafa skorist í leikinn og hvatt bæði lið til að sýna stillingu og hafa vit á að koma sér inn í búningsklefa.

Írski ríkismiðillinn RTE segir að nú bíði UEFA eftir skýrslu frá Munuera sem og frá eftirlitsmanni leiksins, áður en óháð aganefnd geti þá tekið afstöðu til mögulegrar refsingar.

Heimir gætti orða sinna þegar hann var spurður út í atvikið í viðtali eftir 1-1 jafnteflið í Serbíu á sunnudagskvöld (þar var leikið vegna ákvörðunar Íra frá því í sumar um að þeir treystu sér ekki til að spila leikinn í Dublin). Hann viðurkenndi þó að eitthvað hefði gengið á:

„Ég var á staðnum. Ég ætla ekki að tjá mig um það. Þetta er eitthvað sem aganefnd mun líklega skoða,“ sagði Heimir.

„Það kom fram ásökun um að einhver hefði hrækt á annan en ég sá það ekki og vil ekki ræða það. Það verður skoðað eins og allt annað sem átti sér stað milli liðanna.

Mér fannst ætlunin vera að reyna að ögra okkur til að gera eitthvað heimskulegt og leikmennirnir eiga hrós skilið fyrir að svara því ekki,“ sagði Heimir.

Írar uppskáru fimm stig úr fyrstu fjórum leikjum sínum í 3. riðli B-deildar Þjóðadeildarinnar og eru jafnir Kósovó í 2.-3. sæti fyrir síðustu tvær umferðirnar í nóvember. Austurríki er efst með átta stig en Ísrael neðst með tvö stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×