Hamilton náði forystunni strax í ræsingunni. Var með miklu betri ræsingu en Rosberg. Massa leiddi keppnina um tíma en Hamilton náði aftur fyrsta sætinu þegar Massa tók þjónustuhlé.
Á 24. hring sagði Nico Rosberg í talstöðinni „ég er að missa vélarafl,“ hann fékk svarið „ERS kerfið er bilað í augnablikinu,“ kerfið veitir auka 160 hestöfl.
„Það er ekki bara ERS kerfið, það er eitthvað meira sem er að hægja á mér, það er eins og bremsurnar sé á,“ sagði Rosberg í talstöðinni, rétt áður en Massa tók fram úr honum.
Rosberg endaði 14. eftir umræðu í talstöðinni um að hætta keppni. Rosberg heimtaði að fá að halda áfram og fékk sínu framgengt. En það skilaði engum stigum.
Pastor Maldonado hætti keppni á 28 hring. Lotus bíllinn hans brann eftir að olía lak á ranga staði. Maldonado virtist ekki hafa mikinn áhuga á að bjarga bílnum enda sennilega kominn með ógeð af honum eftir slakt tímabil.
„Til hamingju Lewis. Mig langaði mikið að vinna keppnina og reyndi en dekkin voru búin að lokum og gat ekki náð Lewis,“ sagði Massa á pallinum.
„Þetta hefur verið ótrúlegt ár við erum að bæta okkur. Ég geri miklar væntingar til næsta árs,“ sagði Bottas, sem var eini aðilinn sem græddi á tvöföldu stigunum í Abú Dabí.

1.Lewis Hamilton - Mercedes - 384 stig
2.Nico Rosberg - Mercedes - 317 stig
3.Daniel Ricciardo - Red Bull - 238 stig
4.Valtteri Bottas - Williams - 186 stig
5.Sebastian Vettel - Red Bull - 167 stig
6.Fernando Alonso - Ferrari - 161 stig
7.Felipe Massa - Williams - 134 stig
8.Jenson Button - McLaren - 126 stig
9.Nico Hulkenberg - Force India - 96 stig
10.Sergio Perez - Force India - 59 stig
11.Kevin Magnussen - McLaren - 55 stig
12.Kimi Raikkonen - Ferrari - 55 stig
13.Jean-Eric Vergne - Toro Rosso - 22 stig
14.Romain Grosjean - Lotus - 8 stig
15.Daniil Kvyat - Toro Rosso - 8 stig
16.Pastor Maldonado - Lotus - 2 stig
17.Jules Bianchi - Marussia - 2 stig
Aðrir ökumenn náðu ekki í stig.
Keppni bílasmiða:
1.Mercedes - 701 stig
2.Red Bull - 405 stig
3.Williams - 320 stig
4.Ferrari - 216 stig
5.McLaren - 181 stig
6.Force India - 155 stig
7.Toro Rosso - 30 stig
8.Lotus - 10 stig
9.Marussia - 2 stig
Önnur lið náðu ekki í stig.