Innlent

Veltir fyrir sér hvort afneitun sé í gangi hjá stjórnvöldum í læknadeilunni

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Steingrímur sagði að nú væri komið að læknum í opinbera kerfinu að fá launahækkun.
Steingrímur sagði að nú væri komið að læknum í opinbera kerfinu að fá launahækkun. Vísir/GVA
„Ég velti því fyrir mér hvort sé einhver afneitun í gangi hjá forustumönnum ríkisstjórnarinnar,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri grænna, í umræðum um störf þingsins í morgun þar sem hann gerði stöðuna í læknaverkfallinu að umtalsefni. Vísaði hann þar til ummæla Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra og Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra.

Steingrímur sagði ráðherrana tvo hafa „reynt að henda boltanum í allar aðrar áttir en til síns sjálfs hvað það varðar að aðrir eigi að bera ábyrgð á því að ekki semst við lækna“. Sagði hann læknar væri hópur sem hefði setið eftir.

Ný hrina verkfalla lækna hófust á miðnætti og enn sér ekki fyrir endann á kjaradeilum lækna við ríkið. Sigmundur Davíð hefur sagt að verði fallist á kröfur lækna gæti það haft áhrif í komandi kjarasamningum annarra hópa.

„Ég sé ekki fordæmisvandann sem er því samfara að horfast í augu við að bæta þarf bæta kjör þessa hóps núna, röðin er komin að hinum fastráðnu læknum í þjónustu ríkisins,“ sagði hann og bætti við: „Það er búið að semja um umtalsverðar hækkanir til sjálfstætt starfandi sérfræðinga.“

Steingrímur sagði einnig að ríkið sem launagreiðandi þyrfti að vera samkeppnisfært og geta boðið þannig kjör að þessi verðmæti starfshópur fáist til starfa hér á landi. „Svo einfalt er það mál,“ sagði hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×