Hætta við olíuleit á Drekasvæðinu Kristján Már Unnarsson skrifar 12. desember 2014 18:00 Sérleyfin þrjú á Drekasvæði. Leyfi Faroe Petroleum, sem skilað var inn, er austast, í fjólubláum lit. Basaltlög þar eru talin hindra tilætlaðan árangur frekari endurkastsmælinga.
Einn þriggja sérleyfishafa á Drekasvæðinu, hópur undir forystu Faroe Petroleum, hefur fallið frá olíuleitinni. Orkustofnun barst í dag erindi frá Faroe Petroleum þar sem tilkynnt er að félagið ásamt samstarfsaðilum þeirra, Petoro Iceland og Íslenskt kolvetni, skili sérleyfi sínu, sem útgefið var 4. janúar 2013. Í tilkynningu á heimasíðu Orkustofnunar kemur fram að aðrir sérleyfishafar halda áfram rannsóknum, samkvæmt rannsóknaráætlunum sínum. Íslenskt kolvetni hf., sem nú hefur dregið sig til baka, segist í fréttatilkynningu hafa á síðustu tveimur árum, í samstarfi með Faroe Petroleum og Petoro, stundað ítarlegar rannsóknir á Drekasvæðinu, meðal annars með því að greina endurkastsmælingar til að meta líkur á að þar kunni að finnast olía í vinnanlegu magni. Graham Stewart, forstjóri Faroe Petroleum, tekur við olíuvinnsluleyfinu frá Guðna Jóhannessyni orkumálastjóra, í janúar 2013. Kristján Jóhannsson, stjórnarformaður Íslensks kolvetnis, fyrir aftan. „Niðurstöður frumrannsókna á leyfissvæðinu benda til þess að frekari endurkastsmælingar í næsta áfanga muni ekki skila tilætluðum árangri, aðallega vegna basaltlaga á austurjaðri Drekasvæðisins. Til viðbótar voru aðrar rannsóknaraðferðir einnig metnar af leyfishöfunum og talið var að þær aðferðir myndu ekki auka líkurnar á að finna kolvetnisgildrur í vinnanlegu magni á leyfissvæði IS2013/01. Þess vegna hefur Íslenskt kolvetni tekið þá ákvörðun að endurnýja ekki leyfi sitt til frekari rannsókna á Drekasvæðinu,“ segir í tilkynningu félagsins, sem Kristján Jóhannsson stjórnarformaður ritar undir. Þar segir ennfremur: „Á síðustu árum hefur starfsemi félagsins vaxið og orðið fjölbreyttari og er félagið með mörg áhugaverð verkefni sem öll tengjast norðlægum slóðum. Þessi verkefni eru áhættuminni og á mismunandi svæðum þar sem meira liggur fyrir af jarðfræðilegum upplýsingum. Stefnt er að því að greina betur frá þeim verkefnum á næstu mánuðum.“
Olíuleit á Drekasvæði Bensín og olía Tengdar fréttir 2,5 milljarðar í olíuleit á Drekasvæði á næsta ári Sérleyfishafar á Drekasvæðinu áforma að verja tveimur og hálfum milljarði króna til olíuleitar á Drekasvæðinu á næsta ári. 15. október 2014 19:15 Miklar gleðifréttir fyrir Íslendinga Olíulindir á norska hluta Jan Mayen-svæðisins, sem Íslendingar eiga rétt á að nýta að hluta, gætu verið yfir fimmtíu þúsund milljarða króna virði, samkvæmt mati sem Olíustofnun Noregs birti í gær. Stjórnarformaður Íslensks kolvetnis segir þetta miklar gleðifréttir. "Nýtt olíuævintýri í norðri" segir í fyrirsögn norska Finansavisen í dag um fréttirnar en þær fjalla einnig um nýtt mat á hluta Barentshafs. Matið yfir norska hluta Jan Mayen-svæðisins snertir Íslendinga vegna 25 prósenta nýtingarréttar, og einnig vegna nálægðar og skyldleika við íslenska Drekasvæðið. 28. febrúar 2013 19:00 Kínverjar mættir til að hefja olíuleitina Leyfishafar á Drekasvæðinu undir forystu kínverska félagsins CNOOC ákváðu á fundi í dag að hraðar yrði farið af stað í olíuleitina en áætlanir gerðu ráð fyrir. 20. október 2014 20:15 Svona ná þeir olíunni upp innan átta ára Vinnsluskip, í líkingu við það sem tekið var í notkun á Skarfs-olíusvæðinu undan Norður-Noregi nú um áramótin, þykir líklegasta aðferðin til að vinna olíu og gas af Drekasvæðinu. Forstjóri Faroe-olíufélagsins segir að með slíkri lausn megi hefja olíuvinnsluna eftir sjö til átta ár, eða mun fyrr en með eldri aðferðum. Afhending fyrstu sérleyfanna á föstudag markaði upphaf olíustarfseminnar á Drekasvæðinu og áætlanir beggja leyfishafa gera ráð fyrir að næstu ár verði notuð til hljóðbylgjumælinga. 7. janúar 2013 18:45 Vonast til að olíuframleiðslan hefjist eftir 7-8 ár Olíuframleiðsla á landgrunni Íslands gæti hafist eftir sjö til átta ár og fyrsti borpallurinn komið eftir þrjú til fjögur ár. Þetta segir forstjóri skoska olíufélagsins Faroe Petroleum, sem nú er orðinn rétthafi fyrsta olíuvinnsluleyfis í lögsögu Íslands. Olíumálaráðherra Noregs segir leyfisútgáfuna í dag sögulegan viðburð. Norski olíumálaráðherrann Ola Borten Moe mætti í Ráðherrabústaðinn klukkan níu í morgun ásamt fylgdarliði til fundar við Steingrím J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra og áttu fulltrúar ríkjanna klukkustundarlangan fund áður en kom að stóru stundinni. 4. janúar 2013 18:37 Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Fleiri fréttir Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Sjá meira
2,5 milljarðar í olíuleit á Drekasvæði á næsta ári Sérleyfishafar á Drekasvæðinu áforma að verja tveimur og hálfum milljarði króna til olíuleitar á Drekasvæðinu á næsta ári. 15. október 2014 19:15
Miklar gleðifréttir fyrir Íslendinga Olíulindir á norska hluta Jan Mayen-svæðisins, sem Íslendingar eiga rétt á að nýta að hluta, gætu verið yfir fimmtíu þúsund milljarða króna virði, samkvæmt mati sem Olíustofnun Noregs birti í gær. Stjórnarformaður Íslensks kolvetnis segir þetta miklar gleðifréttir. "Nýtt olíuævintýri í norðri" segir í fyrirsögn norska Finansavisen í dag um fréttirnar en þær fjalla einnig um nýtt mat á hluta Barentshafs. Matið yfir norska hluta Jan Mayen-svæðisins snertir Íslendinga vegna 25 prósenta nýtingarréttar, og einnig vegna nálægðar og skyldleika við íslenska Drekasvæðið. 28. febrúar 2013 19:00
Kínverjar mættir til að hefja olíuleitina Leyfishafar á Drekasvæðinu undir forystu kínverska félagsins CNOOC ákváðu á fundi í dag að hraðar yrði farið af stað í olíuleitina en áætlanir gerðu ráð fyrir. 20. október 2014 20:15
Svona ná þeir olíunni upp innan átta ára Vinnsluskip, í líkingu við það sem tekið var í notkun á Skarfs-olíusvæðinu undan Norður-Noregi nú um áramótin, þykir líklegasta aðferðin til að vinna olíu og gas af Drekasvæðinu. Forstjóri Faroe-olíufélagsins segir að með slíkri lausn megi hefja olíuvinnsluna eftir sjö til átta ár, eða mun fyrr en með eldri aðferðum. Afhending fyrstu sérleyfanna á föstudag markaði upphaf olíustarfseminnar á Drekasvæðinu og áætlanir beggja leyfishafa gera ráð fyrir að næstu ár verði notuð til hljóðbylgjumælinga. 7. janúar 2013 18:45
Vonast til að olíuframleiðslan hefjist eftir 7-8 ár Olíuframleiðsla á landgrunni Íslands gæti hafist eftir sjö til átta ár og fyrsti borpallurinn komið eftir þrjú til fjögur ár. Þetta segir forstjóri skoska olíufélagsins Faroe Petroleum, sem nú er orðinn rétthafi fyrsta olíuvinnsluleyfis í lögsögu Íslands. Olíumálaráðherra Noregs segir leyfisútgáfuna í dag sögulegan viðburð. Norski olíumálaráðherrann Ola Borten Moe mætti í Ráðherrabústaðinn klukkan níu í morgun ásamt fylgdarliði til fundar við Steingrím J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra og áttu fulltrúar ríkjanna klukkustundarlangan fund áður en kom að stóru stundinni. 4. janúar 2013 18:37