Í dag mun milljónasti farþegi WOW air fljúga með félaginu en þetta kemur fram í tilkynningu frá flugfélaginu. Farþegafjöldi WOW air hefur vaxið jafnt og þétt frá fyrsta flugi félagsins í maí 2012.
Fyrsta árið flugu um 110 þúsund farþegar með flugfélaginu og árið 2013 flaug WOW air með um 415 þúsund farþega. Gert er ráð fyrir 60% aukningu á farþegum milli ára frá um 500 þúsund farþegum nú í ár í um 800 þúsund farþega á næsta ári.
Gunnhildur Blöndal er milljónasti farþegi WOW air og flýgur nú utan seinni partinn ásamt manni sínum Björgvini Viktor Þórðarsyni.
„Við erum að fljúga til London Gatwick flugvallar og erum á leiðinni til Brighton til að versla inn jólagjafirnar og njóta þess að ganga um bæinn. Við erum búin að vera saman í sjö ár og aldrei komist í frí saman áður, svo það má segja að þetta sé stór stund hjá okkur. Við ætlum að vera þarna í sex daga, við höfum aldrei komið þarna áður en heyrt margt gott um Brighton. Maðurinn minn hefur áður flogið með WOW air og fór þá líka til London“ segir Gunnhildur Blöndal sem fékk af þessu tilefni afhent gjafabréf fyrir tvo og ætla þau að skella sér til Dyflinnar næsta sumar.
„Ég er mjög stoltur af því að í dag skulum við fljúga með milljónasta gestinn okkar og afar þakklátur fyrir þær móttökur sem við höfum fengið bæði hér innanlands og erlendis frá fyrsta degi. Það er magnað að nú höfum við flogið með þrefaldan fjölda íslensku þjóðarinnar frá fyrsta flugi okkar. Þessar góðu móttökur hvetja okkur svo sannarlega að halda áfram þeirri stefnu okkar að vera með nýjustu flugvélarnar á Íslandi, vera stundvísasta flugfélagið og bjóða upp á langódýrasta flugið til og frá Íslandi“ segir Skúli Mogensen forstjóri og stofnandi WOW air.
Milljónasti farþegi WOW air fer í loftið í dag
Stefán Árni Pálsson skrifar

Mest lesið

Álögur ríkisins á bankana lendi að miklu leyti á almenningi
Viðskipti innlent

Færri fara til Bandaríkjanna en fækkunin hvað mest frá Íslandi
Viðskipti erlent

Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu
Viðskipti innlent


Þriggja ára fangelsi og tveggja milljarða sekt
Viðskipti innlent

Kínverjar svara fyrir sig og hækka enn tolla á bandarískar vörur
Viðskipti erlent

Að tilkynna vinnufélaga til lögreglu
Atvinnulíf



Órói á mörkuðum heldur áfram og gullverð aldrei hærra
Viðskipti erlent