Skoðun

Spurt... og svarað?

Ari Trausti Guðmundsson skrifar
Ekki veit ég með vissu hvort heppilegt sé að spyrja þriggja meginspurninga nú þegar umræður um aðildar- (eða aðlögunar-) viðræður við Evrópusambandið hafa keyrst fastar í gamalkunnum farvegi. Svör við þessum spurningum (og nokkrum afleiddum) gætu varpað ljósi á hvernig við rekum það sem kallast lýðveldi með þingbundinni stjórn samkvæmt fyrstu grein stjórnarskrár Íslands. Eigum við að reyna?

Fyrsta spurningin (og tvær afleiddar) er svona: Getur stjórnmálaflokkur sem leggur fram grunnstefnuskrá fyrir þingkosningar staðið fast á því að allir kjósendur sínir taki að öllu leyti undir hvert einasta stefnuatriði. Ef svo er hvernig vita stjórnmálamenn flokksins það? Ef svo er ekki hvernig er þá unnt að nota kosningaúrslit sem skýran og óhagganlegan mælikvarða á vilja kjósenda í öllum helstu meginmálum samfélagsins?

Mælir nokkuð gegn þjóðaratkvæðagreiðslu?

Önnur spurning (og tvær afleiddar) er svona: Ef unnar eru nokkrar skoðanakannanir með lágmarks vísindalegum hætti um tiltekin pólitísk meginmálefni, duga þær til að höndla sem best hin sömu mál og þá í samræmi við niðurstöður kannananna? Ef svo er, hvor nýleg könnunin er mikilvægari – sú sem bendir til þess að 60–75% landsmanna séu andvíg inngöngu í Evrópusambandið eða sú sem bendir til þess að 60–75% landsmanna vilji að þjóðaratkvæðagreiðsla um framtíð aðildarviðræðna fari fram? Sé svo ekki, mælir þá eitthvað á móti því að hafa þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort slíta beri viðræðunum eins og nú heyrist rætt um, eða halda þeim áfram og það áður en þingsályktunartillaga um slit er lögð fram á Alþingi?

Þriðja spurning (og tvær afleiddar): Ef skýrsla Hagfræðistofnunar HÍ, umbeðin af fulltrúum vorum sem teljast andvígir EB-aðild, er góð og gild má þá búast við að skýrsla Alþjóðamálastofnunar HÍ, umbeðin af víðtækum samtökum sem sögð eru fylgjandi aðild, verði hvorki góð né gild? Ef svo er, hver eru þá rökin? Ef svo er ekki, væri snjallt að leyfa þeirri skýrslu að lita umræður með opnum huga?

Lesendur Vísis geta sent inn greinar á ritstjorn@visir.is. Greinunum þarf að fylgja mynd af höfundi.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×