Kalla eftir skýrari stefnu 13. september 2014 08:00 Guðmundur Steingrímsson segir í raun bara tvo kosti í stöðunni í peningamálum. fréttablaðið/stefán
Guðmundur Steingrímsson vill að ríkisstjórnin móti stefnu til framtíðar í gjaldmiðilsmálum. Í stefnunni komi fram hver eigi að vera framtíðargjaldmiðill Íslands. Hann hefur ásamt nokkrum öðrum þingmönnum flutt tillögu þessa efnis á Alþingi. Í greinargerð með tillögunni segir að kostir Íslands í gjaldmiðilsmálum séu þó nokkrir. „Þar er ég að vísa í skýrslu Seðlabankans um málið sem mér sýnist vera afar vönduð,“ segir Guðmundur í samtali við Fréttablaðið. „Menn þurfa nú samt ekki að vera langskólagengnir til þess að átta sig á því að það eru í raun aðeins tveir kostir,“ segir hann. Annaðhvort sé það að vera áfram með krónuna eða ganga í Evrópusambandið, ganga í ERM II-samkomulagið og taka upp evru í framhaldinu. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, segist ekki hafa skoðað tillögu þingmanna Bjartrar framtíðar og þess vegna ekki tekið afstöðu til hennar. „Mér finnst við þurfa að velta fyrir okkur og fara í það að aflétta þessum gjaldeyrishöftum og vinna okkur út úr þeim vanda sem við blasir þar áður en við förum að fara í vinnu við breytingu á peningastefnunni,“ segir hún. Ragnheiður segir að það sé í gangi ákveðin peningastefna. „Og það er í gangi vinna um breytingar á lögum um Seðlabankann þar sem þessi mál verða væntanlega öll tekin fyrir.“
Alþingi Mest lesið Maðurinn fannst látinn Innlent Blöskrar framkoma sérsveitar og afskiptasemi nágranna Innlent Grunaðir um að skiptast á að nauðga konu Innlent Banaslys við Fossá Innlent Icelandair þurfi að kannast við reglur réttarríkisins Innlent „Við getum ekki treyst Hagkaup í Skeifunni fyrir unglingunum“ Innlent Krefja blaðamann Samstöðvarinnar um fimmtán milljónir Innlent Fjögur í varðhaldi vegna innbrota í Elko Innlent Inga skellihló að Sigurði Inga Innlent Faðirinn ekki lengur í einangrun Innlent Fleiri fréttir Skyldur vinnuveitenda gífurlegar í erfiðum málum Staðan miklu alvarlegri þegar vígvöllurinn er stærri Móðir ákærð fyrir stórfellda líkamsárás Smíði Ölfusárbrúar í uppnámi vegna skilyrðis fyrir ríkisábyrgð „Við getum ekki treyst Hagkaup í Skeifunni fyrir unglingunum“ „Þegar ég hugsa til baka þá fæ ég bara kökk í hálsinn“ Banaslys við Fossá Erlend glæpagengi fá Íslendinga til að ræna reiðhjólaverslanir Miðflokkurinn marktækt stærri en Sjálfstæðisflokkurinn Tíðindi í glænýrri könnun, innbrotafaraldur og biðin sem sligar fjölskyldur Fjögur í varðhaldi vegna innbrota í Elko Tveir í bílnum sem ók út af Nokkur vitni að banaslysi við Brúará Stefnt að hertara eftirliti á landamærunum í nóvember Inga skellihló að Sigurði Inga Útsvarsaukningin aðeins hugsuð til tveggja ára Skerða orku til stórnotenda Alvarlegt umferðarslys við Fossá á Skaga Segir fjármálaráðherra ekki kunna að reikna Blöskrar framkoma sérsveitar og afskiptasemi nágranna Tveir hafa játað sök í stóra fíkniefnamálinu sem fer ekki fet Verður formaður stjórnar Matvælasjóðs Faðirinn ekki lengur í einangrun Þurfi að komast út úr kjarasamningum „með góðu eða illu“ Landris og kvikusöfnun heldur áfram Sigurður Ingi segir skort á sálfræðingum vandamál Baldur greiddi fjórðung kostnaðar við framboð sitt sjálfur Maðurinn fannst látinn Garðabæ óheimilt að skerða þjónustu við ellefu ára stúlku Bein útsending: Málþing um fóstur- og nýburaskimanir Sjá meira