Þjálfari Barcelona hataður í Madríd Tómas Þór Þórðarson skrifar 25. október 2014 10:00 Luis Enrique er þjálfari Barcelona. Vísir/Getty
Luis Enrique, þjálfari Barcelona, snýr aftur á Santiago Bernabéu í fyrsta sinn sem þjálfari á laugardaginn þegar El Clásico fer fram. Enrique hóf leikmannsferil sinn með Sporting Gíjon, en gekk í raðir Real Madrid árið 1991. Hann spilaði 213 leiki fyrir Madrídarliðið á fimm árum. Enrique hóf ferilinn sem framherji, en var mikið notaður sem bakvörður hjá Real. Undir lokin var hann lítið notaður og vildi losna frá liðinu. Hann fór 1996 og gerði það sem ekki má eftir að spila með Real; semja við Barcelona. Enrique skapaði usla strax á fyrsta blaðamannafundi sem Börsungur þegar hann sagði: „Mér líkaði aldrei við að sjá sjálfan mig í búningi Real. Mér líður mun betur í litum Barcelona.“ Eftir það varð ekki aftur snúið. Enrique er hataður af stuðningsmönnum Real Madrid, og ekki hjálpaði til að hann fagnaði mörkunum fimm sem hann skoraði á móti Real með Barcelona af þvílíkum krafti að annað eins hefur varla sést. „Ég á engar góðar minningar frá tíma mínum hjá Real Madrid,“ sagði Luis Enrique einu sinni. Honum verður ekki vel tekið á Bernabéu.
Spænski boltinn Mest lesið Mundi ekki eftir öðrum eins áverkum og á fórnarlambi Conors Sport Skuldar engum neitt vegna Guðjohnsen nafnsins Fótbolti Óþekkjanlegur Adriano: „Ég drekk á hverjum degi“ Fótbolti Er HSÍ í samstarfi við Adidas eða ekki? Handbolti Sandra ekki í EM-hópnum en Rut fer með Handbolti Hætt eftir drónaskandalinn Fótbolti Svona var fundurinn er Arnar tilkynnti EM-hópinn Handbolti Keflavík semur við leikmann sem hefur skorað tvö stig í úrslitaeinvígi NBA Sport Vildi ekki deila Match of the Day með konu og hafnaði tilboði BBC Enski boltinn Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt Íslenski boltinn Fleiri fréttir Misskemmtilegt kvöld hjá íslensku konunum í Meistaradeildinni Kanté fær fyrirliðabandið hjá Frökkum Viðurkennir mistök sem bitnuðu illa á Man Utd í lokaleik Ten Hag Sá sem beit mótherja mætir ekki Íslandi Reiddist blaðamanni: „Þú ert alveg vonlaus“ Furða sig á fangelsisdómnum sem forsetinn fékk Tómas tryggði strákunum sigur á Aserum Skuldar engum neitt vegna Guðjohnsen nafnsins Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt Vildi ekki deila Match of the Day með konu og hafnaði tilboði BBC Tengdasonur Roy Keane í enska landsliðinu Óþekkjanlegur Adriano: „Ég drekk á hverjum degi“ Hætt eftir drónaskandalinn Frönsk fótboltastjarna fékk fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot Leika fyrir luktum dyrum í öðru landi eftir lætin í Amsterdam Markvörðurinn Mary fyrst á Madame Tussauds Guðný á leið í aðgerð og missir af næsta verkefni landsliðsins Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Bruno til bjargar Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Kristófer áfram í Kópavogi Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Ödegaard strax aftur heim Lampard sótti um starfið hjá Coventry Damir á leið til Asíu Sjá meira