Sérútgáfa af Dancing Horizon Friðrika Benónýsdóttir skrifar 19. desember 2014 12:30 Sigurður Guðmundsson Í Dancing Horizon eru ljósmyndaverk Sigurðar frá 1970 til 1982. Vísir/GVA „
Við bjóðum upp á þann möguleika að fólk geti fengið eitthvað beint frá listamanninum með því að gefa út sérútgáfu,“ segir Kristján B. Jónasson, útgefandi í Crymogeu, sem gefur út sérútgáfu af listaverkabókinni Dancing Horizon eftir Sigurð Guðmundsson í fimmtíu tölusettum og árituðum eintökum. „Sérkenni hennar er að engin tvö eintök eru eins. Hver bók er í sérstöku bandi og með sérstakri þrykkingu þannig að um fimmtíu ólík „verk“ er að ræða.“ Á bak við bókina er að sögn Kristjáns sú hugsun að sá sem eignast bók, eignist bók í sérstökum lit sem viðkomandi er hrifinn af. Þannig sé sérútgáfan í nokkurs konar litasamhljómi við innri mann þess sem kaupir. „Þetta snýst um það að búa til einstakan grip sem kitlar litla safnarann í fólki,“ útskýrir Kristján. „Þetta er útgáfa sem gerir fólki kleift að tengjast listamanninum meira og eignast einstakt verk eftir hann án þess að það setji fjárhaginn í uppnám.“
Menning Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Hvað veistu um… London? Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Fleiri fréttir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira