Hundrað meðlimir Hamas handteknir Samúel Karl Ólason skrifar 3. júlí 2015 15:52 Hamas samtökin hafa kallað eftir því að mönnunum verði sleppt og vara við afleiðingunum, verði það ekki gert. Vísir/AFP
Yfirvöld á Vesturbakkanum í Palestínu hafa handtekið rúmlega hundrað meðlimi Hamas samtakanna. Handtökurnar voru framkvæmdar af aðilum Fatah hreyfingar Mahmoud Abbas, forseta Palestínu. Þeir segja að Hamas-liðarnir hafi ætlað að draga úr öryggi Vesturbakkans. Talsmaður Hamas samtakanna segir BBC að mennirnir hafi verið handteknir til að stöðva árásir Hamas á Ísrael. Husam Badran sagði Fatah vinna fyrir Ísraelsmenn og sagði að samtökin teldu Abbas persónulega ábyrgan fyrir handtökunum. Hamas samtökin hafa kallað eftir því að mönnunum verði sleppt og vara við afleiðingunum, verði það ekki gert. Handtökuskipun hefur verið gefin út á helstu leiðtoga Fatah á Gasaströndinni. Hamas stjórnar Gasa og Fatah stjórna Vesturbakkanum. Fylkingarnar hafa stýrt sitthvoru svæðinu frá því að Hamas vann þingkosningar árið 2006 og bolaði Fatah frá Gasa árið 2007. Fréttaritari BBC í Jerúsalem segir að samstarf Ísraels og yfirvalda á Vesturbakkanum sé viðkvæmt málefni í Palestínu og að þessar deilur muni ýta undir ótta við deilur á milli Hamas og Fatah.
Gasa Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira