Kasakar voru yfir í samtals 98 mínútur í Hollandi og Tékklandi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. september 2015 16:30 Kasakar komust yfir á móti Tékkum í síðasta leik sínum í undankeppninni. Vísir/AFP
Ísland mætir Kasakstan á Laugardalsvellinum í kvöld og nægir aðeins eitt stig til að tryggja sér sæti í úrslitakeppni EM í fyrsta sinn. Lið Kasakstan hefur ekki enn náð í stig á útivelli en eina stig liðsins í riðlinum var í markalausu jafntefli á móti Lettlandi á heimavelli í fyrstu umferðinni. Síðan þá hefur Kasakstan tapað sex leikjum í röð þar á meðal 3-0 á heimavelli á móti Íslandi í marsmánuði. Kasakar hafa tapað útileikjum sínum á móti Hollandi (3-1), Tyrklandi (3-1) og Tékklandi (2-1) en eiga síðan Letta á heimavelli í lokaleiknum. Það vekur samt athygli að landslið Kasakstan hefur skorað í öllum útileikjum sínum og komist í 1-0 í tveimur þeirra. Kasakar voru þannig yfir í samtals 98 mínútur í leikjum sínum í Hollandi og Tékklandi. Kasakstan komst í 1-0 á 17. mínútu á Amsterdam Arena og þannig var staðan þar til á 62. mínútu er Hollendingum tókst loksins að jafna. Hollenska liðið skoraði síðan tvö mörk til viðbótar. Á fimmtudaginn var komust Kasakar í 1-0 á 21. mínútu á móti Tékkum í Plzen og þannig var staðan þar til á 74. mínútu. Milan Skoda náði þá að jafna metin og skoraði síðan líka sigurmark Tékklands fjórum mínútum fyrir leikslok. Kasakar eru búnir að fá á sig átta mörk í útileikjum sínum þremur en sex þeirra hafa komið á síðasta hálftíma leikjanna.
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira