Íslenski boltinn

Uppbótartíminn: FH komið með níu fingur á titilinn

Úr leik FH og ÍBV.
Úr leik FH og ÍBV. Vísir/Pjetur
Nítjánda umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu kláraðist í gær. Hverjir áttu góðan dag og hverjir áttu erfiðan dag? Hvað segir tölfræðin og hver var umræðan á Twitter? Vísir gerir hér upp umferðina á léttu nótunum.

FH-ingar eru komnir með átta stiga forskoti á toppnum eftir sigur á ÍBV og jafntefli hjá Breiðabliki og KR. Keflavík féll endanlega eftir enn eitt tapið, nú fyrir Valsmönnum, Fjölnismenn unnu nauman sigur á Leikni og Stjarnan gekk langt með að gulltryggja sæti sitt í deild þeirra bestu með sigri á Fylki.

Umfjöllun og viðtöl úr leikjum umferðarinnar:

FH 3-1 ÍBV

ÍA 0-0 KR

Leiknir R. 2-3 Fjölnir

Stjarnan 1-0 Fylkir

Valur 2-3 Keflavík

Víkingur R. 2-2 Breiðablik

Vísir/Anton
Góð umferð fyrir ...

... FH-inga

FH er komið með níu fingur á titilinn eftir 3-1 sigur á ÍBV í Kaplakrika en aðra umferðina í röð náðu FH-ingar í þrjú stig á sama tíma og Breiðablik og KR nældu aðeins í eitt. Fyrir vikið er FH komið með átta stiga forskot á toppi deildarinnar og dugar jafntefli í næsta leik til þess að tryggja Íslandsmeistaratitilinn, þann fyrsta í þrjú ár.

... Rúnar Pál Sigmundsson

Rúnari Pál leið eflaust ágætlega er hann lagðist á koddan í gær en Stjarnan gekk langt með að gulltryggja sæti sitt í deild þeirra bestu á næsta ári með sigri á Fylki í gær. Ríkjandi Íslandsmeistararnir voru þá að vinna sinn fyrsta leik í tæplega sjö vikur en liðið hefur verið andlaust undanfarnar umferðir.

... Árni Snær Ólafsson

Markvörður ÍA var maður leiksins í leik ÍA og KR upp á Akranesi en hann bjargaði liðsfélögum sínum margoft í leiknum. Var hann valinn maður leiksins en með stiginu eru nýliðarnir komið upp í 20 stig, fimm stigum frá fallsæti þegar þrjár umferðir eru eftir. Árni var valinn maður umferðarinnar í Pepsi-mörkunum fyrir frammistöðu sína.

Leikmenn FH og ÍBV að deila um brot í leiknum við Þórodd.Vísir/Pjetur
Vond umferð fyrir ...

... Þórodd Hjaltalín, dómara

Þóroddur vill eflaust gleyma þessari umferð sem fyrst enda í sviðsljósinu eftir að hafa tekið afleita ákvörðun gegn FH. Kassim Doumbia, varnarmaður FH, blakaði boltanum með hendinni út úr markinu en Þóroddur sá atvikið ekki og dæmdi aðeins hornspyrnu. FH-ingar bættu við marki stuttu síðar sem gerði út um leikinn en spurning er hvernig farið hefði ef þetta atvik hefði ekki komið upp. Afleit ákvörðun.

... Keflavík

Keflvíkingar hafa verið fastagestir í þessum lið í sumar enda hefur liðið aldrei náð sér á strik. Félagið er fallið niður um deild eftir afskaplega dapurt og andlaust sumar. Liðið sýndi þó einhvern baráttuanda gegn Valsmönnum í umferðinni en það vantaði einfaldlega of mikið upp á hjá liðinu í allt sumar. Spurning hvað tekur við hjá liðinu en síðast þegar liðið féll niður um deildina stoppaði liðið aðeins eitt ár í 1. deildinni en deildin er töluvert erfiðari í dag.

... Blika

Tvær umferðir í röð hafa Blikar grátlega tapað stigum og misst af tækifærinu að berjast um titilinn við FH. Í síðustu umferð klúðraði Jonathan Glenn víti á síðustu sekúndum leiksins en að þessu sinn var það víti sem liðið fékk á sig í uppbótartíma. Fyrir vikið skiptir leikur Blika og FH ekki jafn miklu máli um næstu helgi, það er aðeins tímaspursmál hvenær FH-ingar verða krýndir Íslandsmeistarar.



Úr leik Leiknis og Fjölnis.Vísir/Pjetur
Skemmtilegir punktar úr Boltavaktinni:

Eiríkur Stefán Ásgeirsson á Laugardalsvelli:

„Haukur Ingi og Bjössi Hreiðars taka hér innilegt knús við hliðarlínuna. Það var overtime á þessu knúsi, sem var fallegt að sjá.“

Tómas Þór Þórðarson á Víkingsvelli:

„Afskaplega huggulegt að sjá tvo vel dressaða þjálfara á hliðarlínunni. Milos og Arnar báðir vel til fara eins og alltaf.“

Eiríkur Stefán Ásgeirsson á Samsung-vellinum:

„Hér var verið að spila Orminn langa með færeysku hljómsveitinni Tý. Það var óskalag fyrir Gunnar Nielsen og því lýg ég ekki.“

Hæstu og lægstu einkunnir umferðarinnar:

Emil Pálsson, FH - 8

Steven Lennon, FH - 8

Árni Snær Ólafsson, ÍA - 8

Guðmundur Karl Guðmundsson, Fjölnir - 8

Hilmar Árni Halldórsson, Leiknir - 8

Sigurður Egill Lárusson, Valur - 8

Vladimir Tufegdzic, Víkingur - 8

Oliver Sigurjónsson, Breiðablik - 8

Andrés Már Jóhannesson, Fylkir - 3

Oddur Ingi Guðmundsson, Fylkir - 3

Ragnar Bragi Sveinsson, Fylkir - 3

Umræðan #pepsi365
Atvik 19. umferðar: Mark umferðarinnar: Leikmaður umferðarinnar:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×