Lars Lagerbäck býst ekki við Jón Daði spili á morgun Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. október 2015 14:47 Jón Daði Böðvarsson í leik á móti Tékkum. Vísir/EPA
Íslenska knattspyrnulandsliðið verður líklega án framherjans Jóns Daða Böðvarssonar í síðasta heimaleik sínum í undankeppni EM sem verður á móti Lettum á Laugardalsvellinum á morgun. Jón Daði fékk högg á hnéð og missti af æfingum landsliðsins í vikunni. Þegar Lars Lagerbäck, annar þjálfari íslenska liðsins, var spurður út í stöðuna á Jón Daða á blaðamannafundi í dag, þá var hann ekki bjartsýnn fyrir hönd Selfyssingsins. „Ég held að Jón Daði verði ekki orðinn leikfær fyrir leikinn á morgun. Hann getur hlaupið en hann finnur til þegar hann sparkar í boltann. Eins og staðan er í dag þá er Jón Daði ekki klár í að byrja eða spila leikinn á morgun," sagði Lars Lagerbäck. Jón Daði Böðvarsson hefur byrjað sex af átta leikjum Íslands í keppninni og komið við sögu í þeim öllum. Hann var í byrjunarliðinu í báðum sigurleikjum íslenska liðsins á móti Hollandi sem og í leikjunum á móti Tyrklandi og Lettlandi í upphafi keppninnar. Kolbeinn Sigþórsson mun því fá nýjan framherja við hlið sér í leiknum gegn Lettum og valið stendur þar líklega á milli þeirra Alfreðs Finnbogasonar, Eiðs Smára Guðjohnsen og Viðars Arnar Kjartanssonar. Lars Lagerbäck talaði um það á blaðamannafundinum að hann og Heimir Hallgrímsson, hinn þjálfari íslenska liðsins, væru búnir að ákveða hver kemur inn fyrir Jón Daða en Svíinn vildi ekki gefa upp hver það væri þar sem hann ætti eftir að tala við leikmennina.
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira