Þegar elsti hluti flugstöðvar Leifs Eiríkssonar var tekinn í notkun árið 1987 fannst mörgum flugstöðin óhóflega stór og spár um fjölgun farþega full bjartsýnar. En í dag voru kynnt áform um gríðarlega stækkun flugstöðvarinnar á næstu árum.
Skömmu eftir að flugstöðin var byggð fóru rúmlega 700 þúsund farþegar um hana á ári en á þessu ári er reiknað með að þeir verði á bilinu 4,5 til fimm milljónir.
Áætlanir sem Ísavía kynnti fyrir um átta mánuðum gerðu ráð fyrir að á árinu 2018 færu sex milljónir farþega um flugstöðina. En samkvæmt áætlunum sem kynntar voru í dag er gert ráð fyrir að því marki verði náð strax á næsta ári.
Farið hraðar af stað en til stóð
„Það hefur auðvitað bæði orðið mikil fjölgun hjá Icelandair og WOW. Miklu meiri en við bjuggumst við. Við erum líka með önnur flugfélög sem hafa komið þarna inn en það eru auðvitað fyrst og fremst Icelandair og WOW sem valda því að við verðum að fara hraðar af stað en við ætluðum okkur,“ segir Björn Óli Hauksson, forstjóri Ísavía, sem kynnti í dag uppfærða þróunaráætlun samkvæmt verðlaunatillögu Nordic Arch arkitektastofunnar frá því í febrúar.

„Og við þurfum þá að fara að hanna nýju flugstöðina og svæðið í kring um hana. Við sjáum fyrir okkur að hönnun verði tilbúin í ársbyrjun 2017 og þá myndum við bjóða út verkið. Næstu fjögur, fimm árin verður þetta komið,“ segir Björn Óli.
Gert er ráð fyrir að þessi fyrsti hluti framkvæmdanna muni kosta á bilinu 70 til 90 milljarða sem að fullu yrði fjármagnað með tekjum flugstöðvarinnar. Þannig að ríkissjóður þarf ekki að leggja til fjármagnið.
Áætlað er að gjaldeyristekjur þjóðarbúsins af ferðaþjónustunni verði 350 milljarðar í ár, um 620 milljarðar árið 2020 og yfir 1.000 milljarðar árið 2040.
Verður á stærð við aðalflugvelli hinna Norðurlandanna
Í dag vinna um 3.500 manns við flugvöllinn. Í lok þróunaráætlunarinnar árið 2040, þegar einnig verður búið að byggja yfir ýmsa stoð- og hliðarstarfsemi, verða starfsmenn mun fleiri.
„Þannig að þegar við erum komin á þetta stig verða alla vega um tíu þúsund manns vinnandi hérna, með alveg ótrúlega mörgum afleiddum störfum. Sennilega gætu þá um 60 þúsund manns verið að vinna afleidd störf í tengslum við þessar breytingar hér á flugvallarsvæðinu,“ segir Björn Óli. Þá verði Keflavíkurflugvöllur af svipaðri stærðargráðu og aðalflugvellir hinna Norðurlandanna.
Það ræður miklu um þessa þróun að Keflavíkurflugvöllur er í vaxandi mæli miðstöð eða „hub“ flugs á milli norður Ameríku og Evrópu, þar sem stór hluti farþega stoppar aðeins á Íslandi í nokkra daga eða eingöngu til að skipta um flugvél.