Zlatan skoraði en Svíar í umspil | Rússar komnir á EM Tómas Þór Þórðarson skrifar 12. október 2015 17:51 Zlatan fer í umspil aðra undankeppnina í röð. vísir/getty
Rússland varð nú rétt í þessu 17. þjóðin til að tryggja sér farseðilinn til Frakklands næsta sumar, en Rússar náðu öðru sætinu í G-riðli undankeppni EM 2016 með 2-0 sigri á Svartfjallalandi á heimavelli. Oleg Kuzmin kom Rússum yfir á 33. mínútu og Aleksandr Kokorin tvöfaldaði forskotið með marki úr vítaspyrnu fjórum mínútum síðar. Fleiri mörk voru ekki skoruð. Rússar voru tveimur stigum á undan Svíþjóð fyrir lokaumferðina í dag og þurftu að vinna því Zlatan Ibrahimovic og félagar áttu fyrir höndum þægilegan leik gegn Moldóvu. Zlatan skoraði fyrra mark Svía í 2-0 sigri á heimavelli á 24. mínútu og Erkan Zengin það síðara í byrjun seinni hálfleiks en það dugði ekki til. Rússar náðu öðru sætinu með 20 stig en Svíar hafna í því þriðja með 18 stig og þurfa að fara í umspil um sæti á EM 2016. Austurríki kórónaði frábæra frammistöðu sína í riðlakeppninni með 3-0 sigri á Lichtenstein og vann riðilinn með 28 stig af 30 mögulegum. Austurríki var löngu búið að tryggja sér farseðilinn á EM, en liðið varð fimmta þjóðin sem komst til Frakklands. Bara gestgjafar Frakka, Englendingar, Tékkar og Íslendingar voru á undan Austurríki.
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Segir félagið í skítnum Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira