Þjóðverjar komust inn á 24. stórmótið í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. október 2015 22:30 Max Kruse fagnar sigurmarki sínu í kvöld. Vísir/Getty
Heimsmeistarar Þjóðverjar tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitakeppni Evrópumótsins í Frakklandi næsta sumar eftir 2-1 sigur á Georgíu í lokaleik sínum í undankeppninni. Þjóðverjar náðu í 22 stig í 10 leikjum og unnu D-riðilinn en Pólverjar fengu stigi minni og fylgja þeim þýsku í úrslitakeppnina. Max Kruse tryggði þýska liðinu sigurinn á Georgíu með marki ellefu mínútum fyrir leikslok en það kom eftir stoðsendingu frá Arsenal-manninum Mesut Özil. Thomas Müller hafði áður komið Þjóðverjum í 1-0 á 50. mínútu en Jaba Kankava jafnaði fyrir Georgíu aðeins þremur mínútum síðan. Þjóðverjar voru fimmtánda þjóðin til að tryggja sér sætið á Evrópumótinu en þeir voru meðal annars 35 dögum á eftir íslenska liðinu að næla sér í farseðilinn til Frakklands. Þjóðverjar eru þar með inni á 24. stórmótinu í röð í fótboltanum en þeir hafa verið með á öllum stórmótum heimsfótboltans síðan á Evrópumótinu 1968. Júgóslavar skyldu Vestur-Þjóðverja eftir í riðli þeirra í undankeppni EM 1968 eftir að þýska liðið gerði óvænt markalaust jafntefli við Albaníu í lokaleiknum sínum. Það var mjög óvænt enda var vestur-þýska liðið í úrslitaleiknum á HM 1966 og átti síðan eftir að komast í undanúrslit á HM 1970 og vinna Evrópumeistaratitilinn 1972 og heimsmeistaratitilinn 1974. Frá og með heimsmeistaramótinu í Mexíkó 1970 hafa Þjóðverjar síðan verið með á öllum stórmótum á 47 árum, tólf Evrópumótum og tólf heimsmeistaramótum. Það sem meira er að þýska liðið hefur unnið verðlaun á síðustu fimm stórmótum sínum eða öllum mótum síðan að þeir tóku brons á heimavelli á Hm 2006.
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira