Orti ljóð um fólkið sem segir hann ekki vera listamann Gunnhildur Jónsdóttir skrifar 24. júní 2015 08:30 Einkaþjálfarinn, ljóðskáldið, leikarinn, umboðsmaðurinn og listamaðurinn. Vísir/Ernir
Það er aldrei lognmolla í lífi einkaþjálfarans og listamannsins Sölva Fannars Viðarssonar. Ásamt því að þjálfa í World Class er hann umboðsmaður Hafþórs Júlíusar, leikari, rithöfundur og ljóðskáld. Sölvi hefur verið áberandi í samfélaginu seinustu ár, meðal annars fyrir ljóð sín og ýmsar aðrar uppákomur. „Ég upplifi mikið mótlæti þegar það kemur að listinni minni og fólk reynir að draga mig niður. Margir af listamönnum landsins voru svo sannfærðir um að ég væri ekki listamaður að þeir fóru í hálfgerða herferð gegn mér,“ segir Sölvi, en gefur þó lítið fyrir fólkið sem vinnur gegn honum. „Ég samdi bara ljóð um þetta, það heitir Some people og það fjallar um fólk sem er alltaf á móti öllu og dæmir alla, meira að segja sjálft sig.“Sölvi skrifaði bók um sögupersónu sem hann byggir á eigin reynslu og félagsskap. Persónan er sérsveitarmaður sem minnir helst á skandinavísku víkingaímyndina. Vísir/ErnirÞað vakti athygli fyrir ári þegar Sölvi sat fyrir nakinn í íslensku hrauni, kviknakinn, með risastórt sverð á milli fótanna. Myndin átti upphaflega að vera hluti af herferð gegn kynfærakrabbameini karla en þegar fjölmiðlar fjölluðu um málið kom það aldrei fram. „Mér finnst auðvitað gaman að ögra fólki. Fólk er svo upptekið af því að öllum líki vel við sig að það gleymir að elska sjálft sig. Ef þú ert öðruvísi þá áttu að njóta þess, ekki gera þig straumlínulaga,“ segir Sölvi. „Fólk þarf að vera grjóthart til þess að halda sér á floti í þessum heimi.“ Það er ekki auðvelt að reyna fyrir sér í leiklistarheiminum úti í Englandi, en Sölvi ætlar að láta slag standa. Hann fer reglulega út í áheyrnarprufur og kemst yfirleitt langt og hefur landað nokkrum hlutverkum. „Hér áður fyrr var ég alltaf bara ráðinn í sömu hlutverkin. Af því ég er massaður þá var ég bara fenginn til þess að vera öryggisvörður eða eitthvað í líkingu við það. En nýlega er ég búinn að vera að reyna fyrir mér í alvöru hlutverkum og fólk er farið að sjá að ég get leikið.“ Sölvi segist þó enn halda í íslenska hreiminn þegar hann fer í prufur. „Ég get auðvitað talað með alveg hreinum enskum hreim en ég held þessum íslenska aðeins með, því það er sjarmi yfir því. Það virkaði allavega vel fyrir Björk,“ segir Sölvi hlæjandi.Sölvi gefur út bók í haust.Vísir/ErnirÍ haust mun Sölvi gefa út bók um karakter sem hann leikur í sænskri kvikmynd. „Ég hitti leikstjóra myndarinnar, Frederick Hiller, í Cannes árið 2012. Við byrjuðum að spjalla og hann sagði mér frá myndinni sem hann var að fara að skrifa og ég sagði honum frá karakternum mínum sem ég hafði verið að þróa. Ég kom þá með hugmynd um að setja karakterinn minn í myndina hans. Honum leist mjög vel á það en eina skilyrðið var að bókin mætti ekki koma út á undan myndinni.“ Sölvi leikur sérsveitarmann sem vinnur að því að bjarga heiminum, í anda James Bond. Sölvi byggir persónuna á eigin lífsreynslu frá því að hann bjó í Litháen. „Þá fékk maður vissulega að kynnast ýmiss konar fólki, meðal annars leigumorðingjum. Þeir fá greitt fyrir að ráða fólk af dögum. Ég byggði karakterinn í myndinni upp sem ákveðna andstæðu þeirra,“ segir Sölvi en bætir við að sú reynsla hafi verið algjört menningasjokk enda ólíklegt að það sé leigumorðingja að finna hér á landi. Kvikmyndin, sem heitir Zone 261, var tekin upp í Svíþjóð í lok seinasta árs en Sölvi segir að eftirvinnslan verði mjög dýr enda um stórmynd að ræða. Bókin, sem kemur út samhliða, er þó tilbúin og bíður eftir að verða gefin út. „Það eina sem gengur betur hjá mér en bókin er ferillinn hans Haffa,“ segir Sölvi en Hafþór lék meðal annars í Game of Thrones og hefur mörgum verkefnum rignt yfir hann síðan. „Ég sé um flest alla samninga fyrir hann og les þá yfir með lögfræðingi. Þetta gengur svo vel hjá honum að það er ævintýri líkast.“
Game of Thrones Tengdar fréttir Sölvi Fannar við EasyJet: „Why do you not call your cabin baggage: cabbage?“ Þúsundþjalasmiðurinn sendi flugfélaginu fyrirspurn sem endaði á 9gag. 29. október 2014 13:00 Fjallið og Sölvi Fannar bjarga pókerspilara úr höndum mannræningja Hafþór Júlíus Björnsson er orðinn vel þekktur um heim allan eftir að hann lék Fjallið svokallaða í þáttunum Game of Thrones. 8. júní 2015 14:00 Sölvi Fannar gefur heimilislausum manni að borða Segir lesendum Lífsins hvernig hann hugsaði nýtt hlutverk í tónlistarmyndbandi, ramma fyrir ramma. 4. nóvember 2014 13:00 Mest lesið Varð mjög hræddur en fann huggun í húmornum Lífið Fóru hringinn um Grænlandsjökul á baki vinddreka: Brotin rifbein, kynngimagnað sjónarspil og óþægilegt návígi við ísbjörn Ferðalög Galdrasaga um fimm 50+ konur: „Við vorum fimm konur að fæða sama barnið“ Áskorun Julian McMahon látinn Lífið Var orðið að spurningu um líf og dauða Lífið Krakkatían: Tölur, mýs og tónlist Lífið Mömmustrákur skýtur uppvakningum ref fyrir rass Gagnrýni Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Lífið Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ Tónlist Norah Jones: Tíminn stóð í stað þar til ljóskastarinn vakti mann Gagnrýni Fleiri fréttir Varð mjög hræddur en fann huggun í húmornum Krakkatían: Tölur, mýs og tónlist Julian McMahon látinn Var orðið að spurningu um líf og dauða Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Aron Kristinn orðinn pabbi Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Sumarlegt grillsalat að hætti Hildar Rutar Umboðsmaður Jenner lést af slysförum „Þvílíkur fílingur bara“ „Ég fæ alltaf gæsahúð af góðum texta“ Rósa og Hersir orðin foreldrar Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára „Fólk sleppur ekkert auðveldlega frá mér“ Staðfesta sambandsslitin Ætla að synda frá Elliðaey til Heimaeyjar Michael Madsen er látinn Kvenorkan tók yfir á Garðatorgi Björt og Fannar selja einbýlishús fyrir 90 milljónir Anna Guðný fann ástina í faðmi kraflyftingamanns Lykla-Pétur fauk á haf út Sigraðist á krabba og komst að óléttu samdægurs Miðar á Kaleo endurseldir á margföldu verði Hvar er Mollý Tik Tok skinka í dag? Landsliðsmaður gifti sig í Vík í Mýrdal Eitt glæsilegasta hrossabú landsins falt fyrir tæpan einn og hálfan milljarð Elta drauminn um hægara líf eftir fjögur ár á Íslandi Sólveig og Halldór gáfu dótturinni nafn Slær á létta strengi í þinginu og afhenti ráðherra „Gyllta tappann“ Of Monsters and Men gefa út nýtt lag Sjá meira
Sölvi Fannar við EasyJet: „Why do you not call your cabin baggage: cabbage?“ Þúsundþjalasmiðurinn sendi flugfélaginu fyrirspurn sem endaði á 9gag. 29. október 2014 13:00
Fjallið og Sölvi Fannar bjarga pókerspilara úr höndum mannræningja Hafþór Júlíus Björnsson er orðinn vel þekktur um heim allan eftir að hann lék Fjallið svokallaða í þáttunum Game of Thrones. 8. júní 2015 14:00
Sölvi Fannar gefur heimilislausum manni að borða Segir lesendum Lífsins hvernig hann hugsaði nýtt hlutverk í tónlistarmyndbandi, ramma fyrir ramma. 4. nóvember 2014 13:00
Fóru hringinn um Grænlandsjökul á baki vinddreka: Brotin rifbein, kynngimagnað sjónarspil og óþægilegt návígi við ísbjörn Ferðalög
Fóru hringinn um Grænlandsjökul á baki vinddreka: Brotin rifbein, kynngimagnað sjónarspil og óþægilegt návígi við ísbjörn Ferðalög