Þrír þolendur í mansali í Vík

Eigandinn var úrskurðaður í þrjátíu daga gæsluvarðhald á föstudag. Konurnar tvær sem lögreglan færði í skjól á fimmtudag saumuðu saman flíkur í herbergi á heimili eiganda fyrirtækisins fyrir Icewear. Fyrirtækið var undirverktaki Icewear allt þar til eigandinn var handtekinn á fimmtudag.
Lögregla hafði einnig afskipti af fyrirtækinu í desember en þá störfuðu þrír starfsmenn hjá fyrirtækinu án leyfa. Ágúst Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri og eigandi Icewear, ítrekar að hann hafi ekki vitað af konunum og meðferð þeirra. Hann segir fyrirtækið hafa skoðað undirverktaka sína hér á landi í kjölfar rannsóknar lögreglu. „Það er bara einn undirverktaki annar á Íslandi, hjón sem starfa fyrir okkur og þar er allt með felldu. Annars vil ég ekki tjá mig um málið og ætla að gefa út yfirlýsingu um það seinna,“ segir Ágúst Þór og segir fyrirtækið vinna að því að þróa verkferla til að fyrirbyggja illa meðferð verktaka á starfsfólki í framtíðinni.
Kristrún Elsa Harðardóttir, lögfræðingur og réttargæslumaður, harðneitaði að ræða málefni kvennanna á nokkurn hátt þegar eftir því var leitað hvort þær nytu þjónustu og aðgæslu stjórnvalda samkvæmt aðgerðaáætlun ríkisstjórnar. Heimildir fréttastofu herma að allar konurnar njóti verndar yfirvalda.
Aðgerðaáætlun ríkisstjórnar gegn mansali hefur nú verið endurskoðuð og verður áfram í endurskoðun á árinu. Þetta kemur fram í svari Ólafar Nordal innanríkisráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur alþingismanns um áætlun gegn mansali sem lögð hefur verið fram á Alþingi. Sérstök áhersla verður nú lögð á baráttu gegn vinnumansali með átaki lögreglu í samvinnu við eftirlitsstofnanir og aðila vinnumarkaðarins. Síðustu tvö ár hafa þrjátíu fræðslufundir verið haldnir á landinu um mansal. Á þeim var farið yfir helstu einkenni hugsanlegra fórnarlamba mansals og möguleg úrræði. Íslensk stjórnvöld voru gagnrýnd í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um mansal sem kom út í júlí á síðasta ári og ekki talin styðja nægilega við löggæslu. Lögreglan á Suðurlandi rannsakar annað mansalsmál frá árinu 2014 sem henni hefur ekki tekist að sinna vegna verkefnastöðu og mannafla.
Tengdar fréttir

Mansal í Vík: Maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald til 18. mars
Lögregla segir að rannsóknir sem þessar séu afar viðkvæmar og því muni lögregla ekki upplýsa frekar um gang hennar eða efni að svo stöddu.

Átti að borga tæpa milljón til þess að vinna fyrir Vonta International
Tvær konur sem hafa stöðu þolenda mansals saumuðu saman flíkur hjá fyrirtækinu Vonta International sem var undirverktaki IceWear þar til málið komst upp. Þær bjuggu og störfuðu hjá eigandanum á Víkurbraut í Vík í Mýrdal. Bæjarbúar

Rannsaka mansal af krafti
"Allur kraftur okkar er í þessari rannsókn og við njótum aðstoðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Það er verið að taka skýrslur og afla gagna og rannsóknin er í fullum gangi,“ segir Þorgrímur Óli Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, um framvinduna á rannsókn á meintu mansali í Vík í Mýrdal.

Konurnar unnu í kjallaranum
Maðurinn sem var handtekinn stýrði fyrirtæki sem er verktaki hjá Drífu/Icewear.