
Tímatakan tekur breytingum

Kosning eftir keppnina í Ástralíu fór þannig að ekki fékkst einróma samþykki fyrir því að taka upp fyrra fyrirkomulag á tíamtökunni.
Fyrstu tvær lotunar verða eins og þær voru í Ástralíu. Fyrsta lotan er þannig að eftir sjö mínútur hefst niðurskurður á 90 sekúndna fresti þar sem hægasti ökumaðurinn dettur úr leik.
Önnur lotan er eins að mestu leyti, eini munurinn er að sex mínútur líða áður en niðurskurðurinn hefst.
Þriðja lotan mun breytast og hverfa aftur til fortíðar. Það verður enginn niðurskurður, bara barátta á meðan tímatakan varir og þegar lotunni líkur liggur niðurstaðan fyrir.
Tengdar fréttir

Horner: Þetta fyrirkomulag virkaði ekki
Lewis Hamilton landaði sínum 50. ráspól í Ástralíu í dag. Umræðan eftir tímatökuna snérist aðallega um fyrirkomulag tímatökunnar. Almenn skoðun fólks var að það hefði ekki virkað. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?

Verstappen: Mér er alveg sama, venjulega er ég langt á undan Sainz
Max Verstappen segir að sér sé alveg sama hvað Toro Rosso geri varðandi liðsskipanir í framtíðinni því hann sé venjulega langt á undan liðsfélaga sínum Carlos Sainz. Báðir eru ökumennirnir að hefja sitt annað tímabil í Formúlu 1.

Lewis Hamilton á ráspól í Ástralíu
Lewis Hamilton á Mercedes náði ráspól í fyrstu keppni tímabilsins, liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar og Sebastian Vettel varð þriðji á Ferrari.

Bílskúrinn: Átökin í Ástralíu
Fyrsta Formúlu 1 keppni tímabilsins fór fram í Ástralíu um helgina. Keppnin var spennandi frá upphitunarhring og fram á síðasta hring. Farið verður yfir margt af því helsta frá Ástralíu í Bílskúrnum, uppjöri hvers kappaksturs hér á Vísi.

Mikið gekk á í Ástralíukappakstrinum í Formúlu eitt um helgina | Myndband
Fyrsti Formúlu eitt kappaksturinn fór fram í Ástralíu í gær og það er óhætt að segja að keppnistímabilið hafi farið af stað með miklum látum.