„Það er frábær tilfinning að standa hérna í dag eftir erfiða baráttu við Ferrari. Liðið stóð sig mjög vel,“ sagði Rosberg á verðlaunapallinum.
„Það var gaman í dag að koma frá sjöunda sæti í það annað. Það var gaman að sjá liðið vinna svona vel um helgina,“ sagði Lewis Hamilton á verðlaunapallinum.
„Þetta var skemmtilegt, ég hefði auðvitað viljað enda ofar. Þessi ræsing var góð og minnti mig á ungverska kapaksturinn í fyrra þar sem ég náði að taka fram úr báðum Mercedes bílum í fyrstu beygju,“ sagði Sebastian Vettel á verðlaunapallinum.
„Við vorum að reyna að vera grimmir í keppnisáætlunum okkar eftir rauða flaggið en það skilaði ekki nægu. Við vorum í góðri stöðu fyrir rauða flaggið,“ sagði Maurizio Arrivabene keppnisstjóri Ferrari.
„Þetta er það sem við viljum sjá, hörð keppni! Ferrari var óþægilega nálægt í dag. Úrslitin segja ekki alla söguna, baráttan var hörð í dag,“ sagði Niki Lauda, sérstakur ráðgjafi Mercedes liðsins og fyrrum heimsmeistari í Formúlu 1.

Haas er fyrsta nýja liðið í Formúlu 1 sem nær í stig í sinni fyrstu keppni síðan Toyota kom inn 2002.
„Við misstum afl, vélin var í gangi en ég veit ekki hvað gerðist,“ sagði Kimi Raikkonen. Ferrari bíll logaði aðeins á þjónustusvæðinu.
„Við vorum í góðu formi í dag, ég sá í smástund von um verðlaunapall sem hefði verið skemmtilegt. Við tókum fram úr hraðari bílum í dag. Við höfum fundið afl í vélinni,“ sagði heimamaðurinn Daniel Ricciardo hjá Red Bull.
„Það er ótrúlegt að Fernando [Alonso] hafi geta gengið frá þessu óhappi. Það er frábært að sjá hversu öruggir bílarnir eru. Við völdum tvisvar vitlausa taktík. Það var mjög erfitt að taka fram úr í dag,“ sagði Jenson Button á McLaren.
„Pínu svekkjandi að enda ellefti, ég hefði viljað ná í stig. Það voru mörg jákvæð merki á lofti,“ sagði Jolyon Palmer sem átti góða frumraun í Formúlu 1 í Renault bílnum.
„Ég hef það ágætt, þetta var skuggalegur árekstur. Ég er mjög hamingjusamur að standa hérna á lífi og þakklátur FIA fyrir öryggi bílanna. Því miður höfum við tapað bílnum, mögulegum stigum og líklega vélinni,“ sagði Fernando Alonso, sem vildi ekki kenna neinum um áreksturinn.