Komast Víkingar í úrslitaleikinn í fyrsta sinn eða bæta Valsmenn metið? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. apríl 2016 15:15 Haukur Páll Sigurðsson og Igor Taskovic. Vísir/Stefán
Valsmenn og Víkingar keppa um það í kvöld að komast í úrslitaleik á móti KR í Lengjubikar karla í knattspyrnu og verður undanúrslitaleikur þeirra sýndur beint á Stöð 2 Sport 2. Bæði lið geta skrifað sögu keppninnar með sigri í kvöld, Víkingar orðið þrettánda félagið til að spila til úrslita og Valsmenn bætt metið yfir flesta úrslitaleiki. Undanúrslitaleikur Vals og Víkings hefst klukkan 19.00 og fer fram á Valsvellinum á Hlíðarenda. KR tryggði sér sæti í úrslitaleiknum með 4-0 sigri á Keflavík á föstudagskvöldið. Víkingar slógu Leiknismenn út úr átta liða úrslitum keppninnar í vítakeppni en Valsmenn unnu 2-1 sigur á Breiðablik í sínum leik í átta liða úrslitunum. Víkingar geta með sigri komist í úrslitaleik Lengjubikarsins í fyrsta sinn en þeir eru ekki eitt af þeim tólf félögum sem hafa spilað til úrslita í keppninni. Víkingar voru í sömu stöðu fyrir ári síðan en töpuðu þá 1-0 á móti verðandi meisturum í Breiðabliki. Valsmenn eiga aftur á móti möguleika á því að vera fyrsta félagið sem spilar átta sinnum til úrslita um deildabikar KSÍ en þeir hafa nú spilað sjö leiki eins og FH. Valsmenn hafa enn ekki tapað í keppninni, hafa unnið fjóra leiki og gert tvö jafntefli. Eina tap liðsins í undirbúningsmótunum tveimur kom á móti Leikni í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins. Guðjón Pétur Lýðsson skoraði eina markið þegar Valur vann 1-0 sigur á Víkingum í undanúrslitaleik Reykjavíkurmótsisn sem fór fram í Egilshöllinni 4. febrúar síðastliðinn.Lið sem hafa spilað til úrslita í deildabikar KSÍ Valur 7 FH 7 KR 7 (með 2016) Breiðablik 5 ÍA 3 Fylkir 3 Keflavík 2 Fram 2 ÍBV 1 Grindavík 1 Þróttur 1 KA 1
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Harma rasíska og transfóbíska grein liðsfélaga Sveindísar Fótbolti Amad bjargaði stigi fyrir United Enski boltinn Gjöf frá mömmu vatt rækilega upp á sig Sport Alfreð hissa: Veit að Íslendingar geta mun betur Handbolti Andri Lucas var kóngurinn á King Power í dag Enski boltinn „Fannst þetta verða svartara og svartara“ Handbolti Segir sönginn um Jota á tuttugustu mínútu hafa áhrif á leik Liverpool Enski boltinn Arsenal með sjö stiga forystu á toppnum Enski boltinn Liverpool féll síðast þegar liðið tapaði fimm í röð Enski boltinn Andri Lucas í beinni í Doc Zone: „Við setjum hann í skeytin“ Enski boltinn Fleiri fréttir Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Heimir kynntur til leiks í Árbænum Túfa rekinn frá Val Leyndarmáli ljóstrað upp þegar Heimir og Björn kvöddu Leikmenn kusu Patrick og Guðmund Sjáðu bananabombu Antons Loga og önnur síðustu mörk tímabilsins Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-3 | Stjarnan í Evrópu þrátt fyrir tap „Held að ég geti ekki gert mikið meira“ Uppgjörið: Vestri - KR 1-5 | KR bjargaði sér og sendi Vestra í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - Afturelding 1-0 | Afturelding staldraði stutt við í efstu deild Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Meistararnir klára tímabilið með stæl Uppgjörið: ÍBV - KA 3-4 | KA tryggði sér Forsetabikarinn þriðja árið í röð Ráðast örlög Aftureldingar inni í höll? „Þetta verður bara veisla fyrir vestan“ Sjá meira