Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Sindri Sverrisson skrifar 5. júní 2026 11:06 Sara Björk Gunnarsdóttir snýr nú aftur heim í Hauka. Skjáskot/Haukar fótbolti Sara Björk Gunnarsdóttir er mætt aftur í uppeldisfélagið sitt Hauka og mun klæðast treyju númer 77 í Lengjudeildinni í sumar, eftir afar farsælan feril í atvinnumennsku og með íslenska landsliðinu.
Haukar hafa nú staðfest komu Söru með sannkölluðu gæsahúðarmyndbandi á samfélagsmiðlum sínum. Samningur hennar við félagið er til tveggja ára og mun hún einnig koma að afreksþjálfun hjá félaginu. Sara verður svo á blaðamannafundi í knatthúsi Hauka klukkan 15 í dag. Í myndbandinu að ofan eru rifjuð upp nokkur fræg augnablik frá mögnuðum ferli Söru sem er einstakur í sögu Íslands. Hún er eina íslenska fótboltakonan sem unnið hefur Meistaradeild Evrópu en það gerði hún tvisvar, árin 2020 og 2022 með Lyon. Áður hafði hún einnig komist í úrslitaleikinn með öðru stórveldi; Wolfsburg. Sara skoraði í úrslitaleiknum 2020, gegn sínu gamla liði Wolfsburg, þegar hún varð Evrópumeistari í fyrra skiptið. Hún varð einnig Frakklandsmeistari með Lyon, vann tvöfalt í Þýskalandi með Wolfsburg fjögur ár í röð og hafði áður einnig orðið Svíþjóðarmeistari fjórum sinnum með Rosengård. Þá varð hún bikarmeistari með Juventus 2023 áður en hún fór svo til Al Qadsiah í Sádi-Arabíu þar sem hún hefur spilað síðustu tvö ár. Sara Björk á að baki 145 A-landsleiki og átti leikjametið þar til að Glódís Perla Viggósdóttir sló það fyrr á þessu ári. Hún var um tíma landsliðsfyrirliði og var fyrst valin í A-landsliðið áður en hún var komin með bílpróf, þá aðeins 16 ára og leikmaður Haukaliðsins sem hún snýr nú aftur til. Sara, sem er 35 ára, mun ekki geta spilað með Haukum fyrr en eftir miðjan júlí þegar félagaskiptaglugginn opnast. Liðið er á toppi Lengjudeildarinnar með fullt hús stiga eftir fimm umferðir.
Lengjudeild kvenna Haukar Fótbolti Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins Sjá meira