Ferrari mun mæta með uppfærðar vélar til Rússlands um helgina. Liðsstjóri Ferrari, Maurizio Arrivabene segir uppfærsluna ekki stórfenglega.
Rómur þess efnis að uppfærslan muni loka bilinu á milli Mercedes og Ferrari hefur heyrst. Hins vegar segir Arrivabene að uppfærslan sé ekki svo góð.
„Við munum mæta með uppfærslu ti Sochi [Rússlandi] en ekkert gríðarlega mikilvægt,“ sagði Arrivabene í viðtali hjá UOL. „Við ákváðum að hafa stefnuna þannig að við myndum uppfæra oft og í litlum skömmtum,“ bætti Arrivabene við.
„Þegar maður byrjar timabilið með alveg nýja hönnun, þá gengur það ekki upp að ætla að endurhanna pakkann með hverri uppfærslu.“ hélt Arrivabene áfram.
Uppfærslan mun kosta Ferrari þrjá af þeim níu uppfærsluskömmtum sem liðið á eftir.
Kimi Raikkonen mun við uppfærsluna hefja notkun á sínum öðrum vélarpakka en Sebastian Vettel tekur sinn þriðja um borð. Ökumenn mega nota fimm vélar yfir tímabilið. Ferrari segir að enn megi nota aðra vél Vettel en hún verði ekki notuð strax aftur.
Arrivabene talar niður uppfærslu Ferrari

Tengdar fréttir

Wolff er gapandi yfir þroska Hamilton
Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes liðsins í Formúlu 1 segir að Lewis Hamilton hafi þroskast gríðarlega mikið síðan hann kom til liðsins.

Symonds: Öfug rásröð gæti aukið framúrakstur
Tæknistjóri Williams liðsins í Formúlu 1, Pat Symonds, telur að öfug rásröð myndi þvinga lið til að hanna bíla sem geta betur tekið framúr. Yfirmenn Formúlu 1 liða munu í vikunni taka ákvörðun um reglur ársins 2017.

Konur hafa ekki líkamlega burði til að keyra formúlubíl
Hinn umdeildi yfirmaður Formúlu 1, Bernie Ecclestone, er búinn að gera allt brjálað með ummælum sínum um möguleikann á því að konur keppi í F1.

Pirelli fær 25 prófunardaga á ári
Alþjóðlega akstursíþróttaráðið hefur samþykkt að dekkjaframleiðandinn Pirelli fái 25 daga prófanir á nýjum dekkjum með nýjustu Formúlu 1 bílunum hverju sinni.