AGS telur útgöngu úr ESB hafa slæmar afleiðingar Sæunn Gísladóttir skrifar 17. maí 2016 07:00 Christine Lagarde, framkvæmdastjóri AGS, segist ekki sjá neitt jákvætt við útgöngu Breta úr ESB. vísir/AFP
Christine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS), segir það hafa mjög slæmar afleiðingar kjósi Bretar að ganga úr Evrópusambandinu (ESB). Lagarde sagðist fyrir helgi ekki sjá neitt jákvætt við að Bretar yfirgefi ESB. Ein afleiðing útgöngu þeirra gæti orðið efnahagskreppa. Orð Lagarde ríma við það sem Mark Carney, bankastjóri Englandsbanka, sagði á fimmtudaginn. Hagsmunasamtökin Vote Leave, sem styðja útgöngu, sögðu í kjölfarið að AGS hefði skjátlast áður og að Lagarde hefði rangt fyrir sér nú, að því er segir í frétt BBC um málið. Í skýrslu AGS um breska hagkerfið segir að útganga myndi hafa neikvæð og veruleg áhrif. Áður hefur stofnunin lýst því yfir að útganga myndi leiða til alvarlegs svæðisbundins og alþjóðlegs tjóns. Lagarde sagði það hlutverk Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að meta áhættuna af afleiðingum kosninganna. Útganga úr ESB væri ekki sérmál Breta heldur snerti alþjóðaefnahagskerfið. Hún sagðist á síðustu sex mánuðum hafa verið spurð í hverju landi sem hún hefði komið til hverjar afleiðingar úrsagnar úr ESB yrðu.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 17. maí.
Brexit Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira