Þorgerður Anna heim í Stjörnuna og Hildigunnur í sterkt þýskt lið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. maí 2016 11:15 Hildigunnur Einarsdóttir. Vísir/Ernir
Handknattleikskonurnar Þorgerður Anna Atladóttir og Hildigunnur Einarsdóttir munu spila með nýjum félögum á næstu leiktíð. Þorgerður er á leiðinni heim úr atvinnumennsku en Hildigunnur kemst að hjá sterkara liði í Þýskalandi. Morgunblaðið segir frá því morgun að Þorgerður Anna Atladóttir sé komin heim í Garðabæinn og að Hildigunnur Einarsdóttir hafi gert tveggja ára samning við þýska stórliðið HC Leipzig. HC Leipzig-liðið er því áfram með Íslending innan sinna raða en Þorgerður Anna hefur verið hjá félaginu frá 2014 en lítið spilað vegna meiðsla. Þorgerður Anna Atladóttir er að koma aftur í Stjörnuna eftir fimm ára fjarveru og mun spila með Stjörnunni í Olís-deild kvenna á næsta tímabili. Hún varð Íslandsmeistari með Stjörnunni 2008 og 2009 en fór til Vals 2011 þar sem hún spilaði í tvö tímabil. Þorgerður Anna hefur síðan verið erlendis frá 2013, fyrst með norska liðinu Flint Tønsberg og svo með HC Leipzig þar sem hún missti fyrst mikið úr vegna axlarmeiðsla og svo sleit hún krossband þegar hún var nýkomin aftur. Hildigunnur Einarsdóttir er lykilmaður í íslenska landsliðinu en hún hefur spilað með þýska b-deildarliðinu VL Koblenz/Weibern í vetur. Það er mikil viðurkenning fyrir Hildigunni að HC Leipzig semji við hana en liðið spilar um komandi helgi hreinan úrslitaleik um þýska meistaratitilinn.
Íslenski handboltinn Handbolti Olís-deild kvenna Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Enski boltinn Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Körfubolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira