Lagerbäck aldrei upplifað annan eins fjölmiðlaágang Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 7. júní 2016 11:00 Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari hefur marga fjöruna sopið í bransanum. Hér er hann á Laugardalsvelli í gærkvöldi eftir sinn síðasta landsleik hér á landi. Vísir/Anton Brink
Ómar Smárason, fjölmiðlafulltrúi KSÍ, hefur ekki áhyggjur af því að mikil fjölmiðlaumfjöllun um íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu muni hafa áhrif á gengi liðsins á Evrópumótinu sem hefst í Frakklandi á föstudag. Fyrsti leikur Íslands er við Portúgal þann 14. júní og flýgur liðið út núna klukkan 11. Ómar var því í Leifsstöð þegar Vísir náði tali af honum í morgun. Hann segir að þó að EM í knattspyrnu karla sé af annarri stærðargráðu en EM í knattspyrnu kvenna þá skili sú reynsla sem KSÍ hefur fengið á því móti sér nú auk þess sem Lars Lagerbäck, þjálfari landsliðsins, hefur farið á nokkur stórmót og býr því yfir mikilli reynslu, þar á meðal þegar kemur að fjölmiðlaumfjölluninni.Segir til um hversu mikið heimurinn er að fylgjast með okkur Lars hefur sagt við erlenda fjölmiðla að sú athygli sem hann og íslenska landsliðið hafa fengið seinustu misseri sé mun meiri en sú athygli sem hann fékk þegar hann þjálfaði sænska karlalandsliðið. Það vekur óneitanlega athygli ekki síst vegna þess að gríðarlega mikið var fjallað um Lars og sænska landsliðið þegar hann sendi stjörnuna Zlatan Ibrahimovic heim úr keppnisferð auk tveggja annarra leikmanna sem brotið höfðu reglur þjálfarans. „Já, það er svolítið magnað að maður sem hefur farið á þetta margar Evrópukeppnir og heimsmeistaramót sé að upplifa mesta fjölmiðlaágang eða umfjöllun á sínum ferli. Það segir kannski til um hversu mikið heimurinn er að fylgjast með okkur,“ segir Ómar.Tugir blaðamanna fylgja liðinu Hann segir að um 60 blaðamenn muni fylgja íslenska landsliðinu, helmingurinn eru íslenskir blaðamenn og helmingurinn erlendir blaðamenn. Það sé svipaður fjöldi og hefur fylgt liðinu allt frá að það spilaði haustið 2013 við Króatíu í umspili um laust sæti á HM í knattspyrnu. „Við erum orðin býsna vön þessu. Við erum að fá þennan fjölda á alla leikina sem við höfum verið að spila. Skipulagið úti er fyrsta flokks og gæslan er mjög góð og á meðan við skipuleggjum viðburðina okkar mjög vel og fjölmiðlar fá sanngjarnan aðgang og þannig að aðgangurinn verði ekki að áreiti þá held ég að allir verði sáttir,“ segir Ómar. Hann segir að blaðamenn frá þeim löndum sem eru með Íslandi í riðli hafi boðað komu sína á fjölmiðlaviðburði landsliðsins auk sænskra, bandarískra og brasilískra blaðamanna. KSÍ stillir upp dagskrá landsliðsins en Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, stýrir hverjir í raun hvernig fjölmiðlar fá aðgang að liðinu. Að sögn Ómars eru skyldur liðsins þær að það sé með að minnsta kosti einn fjölmiðlaviðburð á dag þar sem leikmenn og/eða þjálfarar veiti viðtöl. „Við höfum tekið þá nálgun að vera tiltölulega opin þegar kemur að fjölmiðlaufjöllun um landsliðið og erum opnari en flest önnur lönd í þessu,“ segir Ómar.
EM 2016 í Frakklandi Tengdar fréttir Lars: Líður alltaf eins og ég sé kominn heim þegar ég kem til Íslands Lars Lagerbäck kvaddi íslensku þjóðina með 4-0 sigri í síðasta leik strákana okkar fyrir EM. 6. júní 2016 21:36 Þjóðin um Lars á Twitter: Svíum fyrirgefið fyrir ABBA Lars Lagerbäck stýrði íslenska liðinu í sínum síðasta leik á íslenskri grundu í kvöld. 6. júní 2016 22:50 Sjáðu þátt BBC um íslenska fótboltaævintýrið Erlendir fjölmiðlar hafa sýnt íslenska landsliðinu mikinn áhuga í kjölfar frábærs árangurs þess á undanförnum misserum. 5. júní 2016 18:45 Mest lesið Segir að sigurkarfa Elvars hafi verið ólögleg Körfubolti Vinkonur og liðsfélagar létust á leið heim af æfingu Sport Uppgjörið: Litáen - Ísland 99-82 | Hefndu sín á strákunum okkar Körfubolti Skellur fyrir bankabók HSÍ Handbolti Allir sem hylji munninn verði reknir út af Fótbolti Liverpool rak sérfræðinginn sinn og þá fór allt að gerast Enski boltinn Roy Keane næstum búinn að skemma feril Heimis Fótbolti Ældi svakalega á völlinn en hélt svo áfram að spila Enski boltinn Toppliðið í Litaén hjálpar landsliðinu gegn Íslandi Körfubolti „Ég hef bara miklar áhyggjur af þessu“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Hefðum þurft að hitta betur fyrir utan“ Uppgjörið: Litáen - Ísland 99-82 | Hefndu sín á strákunum okkar Skráir nýjan kafla í skíðasögu Íslendinga „Þarna áttu bara að taka yfir leikinn“ Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking Sonur Åge Hareide ráðinn til Molde Toppliðið í Litaén hjálpar landsliðinu gegn Íslandi Stríðið í Mið-Austurlöndum hefur áhrif á Ólympíumót fatlaðra Helena ekki lengur ein í þrjátíu stiga þrennuhópnum Særðir og í hefndarhug: „Erum að fara í alvöru skrímsli“ Sesko-dagar á Old Trafford: „Vildum byggja upp sjálfstraustið hans“ Væri kominn í þúsund mörk ef hann hefði nýtt öll vítin Sonja Lind inn í hópinn fyrir barnshafandi Þóreyju Önnu Chelsea jafnaði metið sem lið Heiðars Helgu setti Ældi svakalega á völlinn en hélt svo áfram að spila „Hvað er hann að gera hér?“ Slot finnst sjaldnast gaman að horfa á enska boltann „Hjartað mitt hætti næstum því að slá“ „Ég hef bara miklar áhyggjur af þessu“ Sjáðu hetjudáðir Sesko, hornamörk Arsenal og ófarir Tottenham Borgaði meira en 28 milljónir króna fyrir Ólympíugallann hennar Segir að sigurkarfa Elvars hafi verið ólögleg Hefur aldrei fengið hausverk á ævinni Liverpool rak sérfræðinginn sinn og þá fór allt að gerast Roy Keane næstum búinn að skemma feril Heimis Vinkonur og liðsfélagar létust á leið heim af æfingu Dagskráin í dag: B-deildarslagur í Birmingham Skellur fyrir bankabók HSÍ Allir sem hylji munninn verði reknir út af „Við fórum bara og fundum aðrar lausnir“ Sjá meira
Lars: Líður alltaf eins og ég sé kominn heim þegar ég kem til Íslands Lars Lagerbäck kvaddi íslensku þjóðina með 4-0 sigri í síðasta leik strákana okkar fyrir EM. 6. júní 2016 21:36
Þjóðin um Lars á Twitter: Svíum fyrirgefið fyrir ABBA Lars Lagerbäck stýrði íslenska liðinu í sínum síðasta leik á íslenskri grundu í kvöld. 6. júní 2016 22:50
Sjáðu þátt BBC um íslenska fótboltaævintýrið Erlendir fjölmiðlar hafa sýnt íslenska landsliðinu mikinn áhuga í kjölfar frábærs árangurs þess á undanförnum misserum. 5. júní 2016 18:45