Guðmundur Helgi eftirmaður mánaðarþjálfarans hjá Fram Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. júlí 2016 12:30 Elmar Hallgríms Hallgrímsson nýr formaður handknattleiksdeildar sést hér á myndinni handsala samninginn við Guðmund Helga Pálsson. Mynd/Handknattleiksdeild Fram
Guðmundur Helgi Pálsson var í dag ráðinn þjálfari karlaliðs Fram í handbolta og gerði þriggja ára samning við Safamýrarliðið. Guðmundur Helgi tekur eiginlega við Framliðinu af tveimur þjálfurum eða þeim Reyni Þór Reynissyni og Guðlaugi Arnarsyni. Reynir Þór var reyndar bara þjálfari Fram í 38 daga þrátt fyrir að hafa gert tveggja ára samning um miðjan maí. Reyni Þór skrifaði undir tveggja ára samning 20. maí en hann og Handknattleiksdeild Fram komust síðan að samkomulagi 27. júní að Reynir hætti sem þjálfari liðsins. Reynir óskaði eftir því að stíga til hliðar. Guðlaugur Arnarsson tók við Framliðinu í apríl 2013 og var að klára sitt þriðja tímabil með liðið á nýlokinni leiktíð. Þetta er þó fyrsti þjálfarinn sem Elmar Hallgríms Hallgrímsson, nýr formaður handknattleiksdeildar Fram, ræður til starfa hjá meistaraflokki Fram því bæði formaður og þjálfari Fram hættu í sumar. Guðmundur Helgi Pálsson þekkir vel til í Safamýrinni en hann lék með Fram á árum 1995 til 2002. Guðmundur varð bikarmeistari með Fram árið 2000 en lagði skóna á hilluna vorið 2002. Guðmundur hefur síðan komið að þjálfun bæði með ÍR og HK og hefur því töluverða reynslu að þjálfun í efstu deild. „Það er mikið fagnaðarefni að fá Guðmund Helga aftur til okkar í Safamýrina og bindum við miklar vonir við hans starf á næstu árum," segir í frétt á heimasíðu Fram. Nú er bara að vona að hann endist lengur í starfi en forveri hans.
Olís-deild karla Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira