Haukar með fullt hús gegn KA | Mikilvægur sigur HK Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. júlí 2016 21:43 Alexander Freyr Sindrason og félagar í Haukum unnu mikilvægan sigur á KA.
Fjórum leikjum í 13. umferð Inkasso-deild karla er lokið.Í fyrsta leik kvöldsins vann Fram 2-1 sigur á Þór á heimavelli. Haukar gerðu góða ferð norður á Akureyri og unnu 0-1 sigur á toppliði KA. Haukar unnu einnig fyrri leikinn gegn KA, 4-1, en þetta eru einu töp KA í Inkasso-deildinni í sumar. Elton Renato Livramento Barros skoraði eina mark leiksins á 61. mínútu en hann skoraði einnig í fyrri leiknum á Ásvöllum. Þetta var fyrsti sigur Hauka í mánuð, eða frá því þeir unnu Keflavík 4-3 24. júní síðastliðinn.Hákon Ingi Jónsson skoraði seinna mark HK í sigrinum á Leikni.vísir/stefanHK vann sterkan 2-1 sigur á Leikni R. í Kórnum. Þetta var fyrsti sigur HK undir stjórn Jóhannesar Karls Guðjónssonar en hann tók við þjálfun liðsins af Reyni Leóssyni fyrr í þessum mánuði. Ágúst Freyr Hallsson og Hákon Ingi Jónsson skoruðu mörk HK en sá síðarnefndi hefur skorað þrjú mörk í síðustu tveimur leikjum Kópavogsliðsins. Atli Arnarson skoraði mark Leiknis með glæsilegu skoti. Þetta var fyrsta tap Breiðhyltinga í sex leikjum. Þá skildu Fjarðabyggð og Leiknir F. jöfn, 2-2, í Austurlandsslagnum. Fjarðabyggð var í kjörstöðu í hálfleik, 2-0 yfir, en Leiknismenn sýndu klærnar í seinni hálfleik, jöfnuðu metin og tryggðu sér stig. Þetta var þriðja jafntefli Leiknis í röð. Víkingur Pálmason og Hákon Þór Sófusson skoruðu mörk Fjarðabyggðar en Jesus Guerrero Suarez og Ignacio Poveda Gaona gerðu mörk Leiknis.Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá úrslit.net.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Tottenham - Nott. Forest | Bæði lið að berjast fyrir lífi sínu Enski boltinn Þórsarar stofna söfnunarreikning vegna sektar KKÍ Körfubolti Báðir þurfa bikar Enski boltinn Fleiri fréttir „Það var erfitt að anda“ Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti „Glasið er hálffullt hérna í Vesturbænum“ Hyggst læra af mistökum Stjörnunnar og sér tækifæri gegn KR Sýning hjá Hrafnhildi Ásu í kvöld 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Sögulegur samningur Víkinga Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn Kemur alltaf í Þór Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Sjá meira