Garðar um glæsimarkið: Þetta er ofarlega á listanum Ingvi Þór Sæmundsson á Akranesi skrifar 24. júlí 2016 19:20
Garðar Gunnlaugsson skoraði stórglæsilegt mark þegar ÍA bar sigurorð af ÍBV á Norðurálsvellinum í dag. Þetta var áttunda mark Garðars í síðustu fimm leikjum en hann hefur verið sjóðheitur að undanförnu. „Ég fékk boltann í fæturna og sný af mér manninn sem kom að mér. Ég ætlaði kannski ekki að setja hann í skeytin inn en ég ætlaði að ná snúningi út og það tókst,“ sagði Garðar sem hefur gert ansi falleg mörk í sumar, þ.á.m. gegn KR og Val. „Þetta er mjög ofarlega á listanum. Ég á reyndar eftir að sjá þetta í sjónvarpinu því það var maður sem hljóp fyrir skotlínuna þannig ég sá boltann ekkert í netinu. En ég sé þetta þegar ég kem heim.“ Garðar kvaðst ánægður með spilamennsku Skagamanna sem hafa nú unnið fimm leiki í röð. „Við vissum að Eyjamenn myndu liggja til baka og við gengum á lagið, héldum boltanum virkilega vel, sérstaklega fyrstu 35 mínúturnar. Svo förum við meðvitað að reyna að halda forystunni í hálfleik,“ sagði Garðar. Skagamaðurinn Darren Lough fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt 16 mínútum fyrir leikslok. Eyjamenn komust þá betur inn í leikinn en Garðar segist aldrei hafa verið áhyggjufullur. „Nei, aldrei. Mér fannst þeir aldrei fá færi og þeir kalla á vítaspyrnu í eitt skiptið en mér fannst það alls ekki vera víti,“ sagði Garðar að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Thelma Karen fer ekki á EM Fótbolti Fleiri fréttir Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Sjá meira