Innlent

Stóð tvö skip að ólöglegum sæbjúguveiðum

Atli Ísleifsson skrifar
TF-SIF.
TF-SIF. vísir/vilhelm
Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, stóð tvö skip að meintum ólöglegum veiðum út af Austfjörðum fyrr í dag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

„Um er að ræða tvö skip sem eru á sæbjúguveiðum en samkvæmt reglugerð atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins eru sæbjúguveiðar bannaðar á svæði fyrir Austurlandi.

Skipunum var vísað til hafnar þar sem skýrsla verður tekin af skipstjórum skipanna,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×