Rosberg er nú kominn með forystu í heimsmeistarakeppni ökumanna. Hann er nú með átta stiga forskot á liðsfélaga sinn, Hamilton. Sebastian Vettel ók gríðarlega vel í dag á Ferrari bílnum. Hann ræsti aftastur og endaði fimmti.
Romain Grosjean tók ekki þátt í keppninni. Frakkinn skautaði á varnarvegg í tímatökunni í gær á Haas bílnum. Bremsurnar virkuðu ekki í undirbúningshring og Haas bíllinn settur inn í bílskúr fyrir keppni.
Öryggisbíllinn var kallaður út strax eftir ræsingu keppninnar. Nico Hulkenberg á Force India lenti í samstuði við Carlos Sainz á Toro Rosso. Aðrir voru einkar heppnir að sleppa við bíl Hulkenberg sem snérist á ráskaflanum. Hulkenberg hætti keppni.
Fernando Alonso átti afar góða ræsingu hann ræsti níundi af stað á McLaren bílnum en var orðinn fimmti eftir ræsinguna.
Rosberg fékk ítrekuð skilaboð á hringjum átta og níu að hann þyrfti að passa hitan í bremsunum. Of heitar bremsur eru eitt helsta vandamálið sem hrjáir bílana á Singapúr brautinni.
Kimi Raikkonen hóf að sækja að Hamilton eftir fyrsta þjónustuhléið og var kominn um og undir sekúnduna á 26 hring. Það er erfitt að taka fram úr á Marina Bay brautinni og Raikkonen varð ekkert ágengt fyrr en á 33 hring þegar Hamilton læsti hægra framdekkinu á leiðinni inn í beygju. Raikkonen var þá kominn fram úr Hamilton og í síðasta verðlaunasætið.

Vettel tók sitt síðasta þjónustuhlé á 43. hring, hann fékk þá últra-mjúku dekkin undir. Vettel kom út í sjötta sæti og hóf aðför að Verstappen í fimmta sætinu. Verstappen brást við með því að taka þjónustuhlé tveimur hringjum seinna og Vettel var orðinn fimmti eftir að hafa ræst 22. af stað.
Hamilton kom inn á þjónustusvæðið á 46. hring og Raikkonen kom inn á næsta hring. Hamilton komst fram úr Raikkonen með þessu þjónustusvæði. Baráttan um þriðja sætið var orðin hörð. Raikkonen var á últra-mjúkum dekkjum en Hamilton á ofur-mjúkum, sem eru ögn harðari.
Ricciardo kom inn á 47. hring. Á meðan setti Rosberg allt í botn. Rosberg átti að koma inn á þjónustusvæðið en fór framhjá. Mercedes liðið var reiðubúið að taka á móti Rosberg. Ricciardo nálgaðist Rosberg afar hratt. Þegar tíu hringir voru eftir var bilið á milli Rosberg og Ricciardo 16 sekúndur.
Bilið var orðið fimm sekúndur á milli Rosberg og Ricciardo þegar fimm hringir voru eftir. Á sama tíma var Raikkonen farinn að gera aðra atlögu að þriðja sætinu sem Hamilton var með. Bilið þar á milli var komið undir eina og hálfa sekúndu þegar fimm hringir voru eftir.
Rosberg reyndi að svara aðeins fyrir sig og tókst það á meðan Ricciardo sneyddi fram úr hægfara bílum. Ricciardo tókst ekki að ná Rosberg þrátt fyrir afar góða tilraun og spennandi loka hringi.