Tómbólujól á útsöluprís 6. janúar fyrir öryrkja og aldraða! Helga Björk Magnúsd. Grétudóttir skrifar 21. desember 2016 00:00 Í Taílandi ganga menn í lörfum á jólum til minnast eins mesta meistara veraldarsögunnar, Jesú Krists sem var meinlætamaður. Ég velti því fyrir mér hvort prestar, biskupar, alþingismenn, hæstaréttardómarar og ríkisforstjórar muni ganga í lörfum um þessi jól, til að sýna samhygð sína gagnvart þeim sem minna mega sín og dansa í kringum gullkálfinn. Mér þótti Bjarni Benediktsson hafa himin höndum tekið, þegar hann áttaði sig á að hið norska kjararáð tæki hinu íslenska fram. Því Norðmönnum þykir sjálfsagt og eðlilegt að öryrkjar og aldraðir séu undir verndarvæng hins norska kjararáðs. Trölli hefur margsinnis stolið jólunum frá þeim er minna mega sín. En hver er Trölli? Er það Alþingi Íslendinga eða bankakerfið? Ég hvet alla öryrkja og aldraða til að sleppa þessu jólafári, sem er ímynduð vitleysa í höndum kaupahéðna. Höldum jól á útsöluprís 6. janúar 2017. Þó svo við vitum að Jesú Kristur fæddist á annarri árstíð. Látum ekki blekkjast. Undirrituð er að dunda sér við að hringja í alþingismenn og bjóða þeim að gefa háttvirtum öryrkjum og öldruðum kjararáðshækkun sína, að fyrirmynd forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessonar. Mun forseti vor einnig nýta forsetabílinn R 1 til að færa þeim mat, árið um kring sem bágstaddir eru? Mér er mjög vel tekið af þeim flestum. Það er verulega spennandi að vita hvaða stjórnmálaflokkur verður gjafmildastur. Munu prestar, sveitarstjórnarmenn, embættismenn og forstjórar ríkisfyrirtækja sem þiggja laun frá Kjaranefnd ánafna hækkun sinni til þeirra er minna mega sín? Eða eru þetta eigingjarnir sjálfselskupúkar og síngjarnir? Sárt er til að vita að umboðsmaður Alþingis, sem hefur rúmlega 1,7 miljónir á mánuði, kvarti undan því að hafa ekki nema 18 milljónir á ársgrundvelli til að sinna frumkvæðismálum. Hjálparstofnana er þörf á tímum náttúruhamfara. Leggjum niður hjálparstofnanir og förum að 76. gr. stjórnarskrárinnar. En þar segir að allir Íslendingar eigi rétt á fæði, klæði, húsnæði og menntun við hæfi. Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Alþingi Mest lesið Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Skoðun Skoðun Stöndum með blaðamönnum Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar Skoðun Þess vegna segjum við NEI þann 29. ágúst Þorvaldur Þorvaldsson skrifar Skoðun Ég kýs JÁ ! - Hvers vegna? skrifar Skoðun Kveðja til hleðslukvíðans Úlfar Linnet skrifar Skoðun Samkeppnishæfni Íslands Ingvar Þóroddsson skrifar Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Traust er ekki sjálfgefið Hilmar Freyr Gunnarsson skrifar Skoðun Evrópusambandið, skjól frá Bandaríkjunum? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Sjá meira
Í Taílandi ganga menn í lörfum á jólum til minnast eins mesta meistara veraldarsögunnar, Jesú Krists sem var meinlætamaður. Ég velti því fyrir mér hvort prestar, biskupar, alþingismenn, hæstaréttardómarar og ríkisforstjórar muni ganga í lörfum um þessi jól, til að sýna samhygð sína gagnvart þeim sem minna mega sín og dansa í kringum gullkálfinn. Mér þótti Bjarni Benediktsson hafa himin höndum tekið, þegar hann áttaði sig á að hið norska kjararáð tæki hinu íslenska fram. Því Norðmönnum þykir sjálfsagt og eðlilegt að öryrkjar og aldraðir séu undir verndarvæng hins norska kjararáðs. Trölli hefur margsinnis stolið jólunum frá þeim er minna mega sín. En hver er Trölli? Er það Alþingi Íslendinga eða bankakerfið? Ég hvet alla öryrkja og aldraða til að sleppa þessu jólafári, sem er ímynduð vitleysa í höndum kaupahéðna. Höldum jól á útsöluprís 6. janúar 2017. Þó svo við vitum að Jesú Kristur fæddist á annarri árstíð. Látum ekki blekkjast. Undirrituð er að dunda sér við að hringja í alþingismenn og bjóða þeim að gefa háttvirtum öryrkjum og öldruðum kjararáðshækkun sína, að fyrirmynd forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessonar. Mun forseti vor einnig nýta forsetabílinn R 1 til að færa þeim mat, árið um kring sem bágstaddir eru? Mér er mjög vel tekið af þeim flestum. Það er verulega spennandi að vita hvaða stjórnmálaflokkur verður gjafmildastur. Munu prestar, sveitarstjórnarmenn, embættismenn og forstjórar ríkisfyrirtækja sem þiggja laun frá Kjaranefnd ánafna hækkun sinni til þeirra er minna mega sín? Eða eru þetta eigingjarnir sjálfselskupúkar og síngjarnir? Sárt er til að vita að umboðsmaður Alþingis, sem hefur rúmlega 1,7 miljónir á mánuði, kvarti undan því að hafa ekki nema 18 milljónir á ársgrundvelli til að sinna frumkvæðismálum. Hjálparstofnana er þörf á tímum náttúruhamfara. Leggjum niður hjálparstofnanir og förum að 76. gr. stjórnarskrárinnar. En þar segir að allir Íslendingar eigi rétt á fæði, klæði, húsnæði og menntun við hæfi. Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar